Saga

Saga Þjóðbrókar
Félagið Þjóðbrók var stofnað árið 1988 en þá var eingöngu hægt að taka þjóðfræði sem aukagrein. Árið 1990 var boðið upp á þjóðfræði sem aðalgrein til 60 eininga og loks til 90 eininga árið 2004.

Félagið Þjóðbrók fær nafn sitt frá tröllskessunni Þjóðbrók en frá henni segir meðal annars í þjóðsögum Jóns Árnasonar:

Skessan Þjóðbrók átti bústað í því gili er við hana er kennt síðan og kallað Þjóðbrókargil, það er vestan við Selárdal. Ekki eru neinar sagnir til um hana nema þessi frásaga er á eftir kemur.

Gissur hét húskarl á Stað er Þjóðbrók vildi fá til sín er hann var í fjárleit, en hann gaf engan kost á því nema því aðeins að hún útvegaði sér fimmtán ára gamlan hákarl, en gaf henni mánaðar frest. Síðan fór hann til hennar og var hjá henni mánaðartíma; þótti henni hann of smávaxinn til að eiga svo stórfengilega konu sem hún var og togaði hann því mjög svo hann varð miklu hærri en áður. Síðan bjóst Þjóðbrók að heiman til þess að útvega hákarlinn. En er hún var burt farin strauk Gissur frá híbýlum hennar og hélt heim til sín yfir skamman fjallveg.En er hann var kominn á svonefnda „Teigabrún“ fyrir ofan Staðarbæ sá hann hvar Þjóðbrók fór á eftir honum með hákarlskippu og æpti að honum: „Hákarlinn, Gissur, hákarlinn, Gissur, fimmtán ára gamall.“ En hann rann undan sem fætur toguðu unz hann náði til kirkju á Stað; braut hann upp kirkjuhurðina og tók í klukkustrenginn og hringdi. Barg það honum, því jafnan varð tröllunum hverft við klukknahljóðið. Skessa hvarf burt í það skipti, en jafnan sat hún um Gissur eftir það og leitaðist við að fá hefnt sín á honum og það vissu heimamenn; voru því hafðar gætur á honum og hann aldrei látinn einn vera. En einu sinni var hann að fjósaverkum og var þá enginn heimamanna hjá honum. Kom þangað Þjóðbrók, réðist á Gissur og rotaði hann loks á flórhellunni. Þjóðbrók á að hafa dagað uppi í Þjóðbrókargili.

Heimild: Jón Árnason (1954). Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, bindi I. Reykjavík.

Saga þjóðfræðinnar við HÍ
Alþingi ályktaði árið 1930 að athuga skyldi hvort koma ætti upp þjóðfræðiskor við Háskóla Íslands. Ekkert kom út úr þeirri vinnu. Árið 1972 hófst kennsla í nokkrum námsskeiðum í þjóðfræði innan heimspekideildar. Í ársbyrjun 1985 varð þjóðfræðin gerð að aukagrein innan félagsvísindadeildar. Frá 1990 hefur verið hægt að taka þjóðfræði sem aðalgrein til BA prófs. Fjórtán ár liðu þar til hægt var að útskrifast með þjóðfræði til 90 eininga frá Háskóla Íslands. Árið 2004 útskrifaðist líka fyrstu þjóðfræðingarnir úr mastersnámi frá Háskóla Íslands.

Flökkusaga ein segir frá því er Bente Gullveig Alver sótti hér á landi Norræna Ethnolog- och folkloristk þingið í ágúst 1986. Brynjulf hafði sterka nálgun og mikinn persónusjarma. Í kvöldverðarhófi í lok þingsins ákváðu íslenskir fræðimenn að best væri að láta Brynjulf sitja við hlið Sverris Hermannssonar þáverandi menntamálaráðherra. Var Brynjulf fengið það verkefni að fá Sverri til að stofna þjóðfræðiskor við Háskóla Íslands. Hann tók sig til og lagði snörur sínar fyrir Sverri við matarborðið. Að lokum á Sverrir að hafa sagt: „ef þú hættir að tala um þjóðfræði skal ég athuga málið“. Hann á síðan að hafa hnippt í Jón Hnefil Aðalsteinsson á leið út og sagt við hann „líttu við á mánudaginn“. Þannig mun þjóðfræðiskor við Háskóla Íslands hafa orðið til.

  

Útgefið efni
Rit þjóðfræðinema heitir Slæðingur. Það kom fyrst út árið 1996 og aftur 1997 en síðan varð hlé á útgáfunni. Næst kom ritið út 2004 og næst vorið 2006. Fyrir daga Slæðings gáfu þjóðfræðinemar út málgögnin Lesbrók: málgagn þjóðbrókar félags þjóðfræðinema sem kom út árin 1990 og 1991 og Þjóðbrókarbót: æsifréttablað þjóðfræðinema sem kom út árin 1995 og 1996. Lesbrók þótti ekki nógu alvarlegur titill á ritið og fengu ritstjórar sem lengi voru að koma út hefti athugasemdir frá kennurum á borð við: „ætlarðu ekki að fara að hysja upp um þig Lesbrókina“. Á sínum tíma var haldin samkeppni meðal þjóðfræðinema um nýtt nafn á ritið. Fyrir valinu varð nafnið Læðingur en þegar til átti að taka kom á daginn að árlegt ljóða- og smásagnakver Bandalag íslenskra sérskólanemenda bar sama nafn. Ögmundur Helgason, kennari í þjóðfræði læddi S-inu fyrir framan nafnið en hann studdi útgáfu fyrstu tveggja heftanna af Slæðingi.

Hér að neðan má lesa útgefið efni Þjóðbrókar. Þeir sem búa yfir ritum sem ekki finnast hér á vefnum eru kvattir til að koma því á framfæri við stjórn Þjóðbrókar, thjodbrok@hi.is.

Lesbrók – 2. árg. 1. tbl. (1991)
Lesbrók – 3. árg. 1. tbl. (1992)

Lesbrók – 4. árg. 1. tbl. (1993)

Lesbrókratíðindi – ódagsett

Þjóðbrókarbót – 1. árg. 1. tbl. (1993)
Þjóðbrókarbót – 1. árg. 2. tbl. (1993)
Þjóðbrókarbót – 2. árg. 1. tbl. (1994)
Þjóðbrókarbót – 2. árg. 1. tbl. (2/1994)
Þjóðbrókarbót – 2. árg. 2. tbl. (1994)
Þjóðbrókarbót – 2. árg. 3. tbl. (1995)
Þjóðbrókarbót – 3. árg. 1. tbl. (1995)

Þjóðbrókarbót – 3. árg. 2. tbl. (1995)
Þjóðbrókarbót – 3. árg. 3. tbl. (1996)

Dreifibréf – ódagsett


Fyrri stjórnir

Hér höfum við gert tilraun til að taka saman lista yfir þá sem haldið hafa utan um félagslíf þjóðfræðinema frá því Þjóðbrók var stofnuð. Því miður eru upplýsingar um sum árin af skornum skammti og væri það því vel þegið ef þeir sem búa yfir upplýsingum sem ekki er að finna hér létu okkur vita í geng um tölvupóstfangið thjodbrok@hi.is. Sömuleiðis ef hér eru einhverjar rangfærslur.

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2007-2008
Formaður: Hjördís Pálsdóttir
Gjaldkeri: Þórunn Kjartansdóttir
Ritari: Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Nýnemafulltrúi: Ragna Gestsdóttir

Ritstjórar Slæðings: Anna María Háakonardóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Óli Gneisti Sóleyjarson og Sigrún Ísleifsdóttir
Þorrablótsnefnd: Ása Ninna Katrínardóttir, Gerður Halldóra Sigurðardóttir og Telma Björg Kristinsdóttir

Skorarfulltrúar / nemendafulltrúar á BA stigi: Hjördís Pálsdóttir og Jóhanna Árnadóttir
Skorarfulltrúi / nemendafulltrúi á MA stigi: Eggert Sólberg Jónsson (haustönn 2007) og Anna Björg Ingadóttir (vorönn 2008)

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2006-2007
Formaður: Jóhanna Árnadóttir
Gjaldkeri: Eggert Sólberg Jónsson
Ritari: Sigrún Ísleifsdóttir
Nýnemafulltrúi: Marie Sliid Clausen (haustönn 2006) og Hjördís Pálsdóttir (vorönn 2007)

Ritstjórar Slæðings: Óli Gneisti Sóleyjarson og Sigrún Ísleifsdóttir
Þorrablótsnefnd: Elsa Ósk Alfreðsdóttir, Selma Guðnadóttir og Sigrún Sigmarsdóttir

Skorarfulltrúar / nemendafulltrúar á BA stigi: Eggert Sólberg Jónsson og Rósa Margrét Húnadóttir
Skorarfulltrúi / nemendafulltrúi á MA stigi: Óli Gneisti Sóleyjarson

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2005-2006
Formaður: Rósa Margrét Húnadóttir
Gjaldkeri: Eggert Sólberg Jónsson
Ritari: Íris Dögg Hauksdóttir
Nýnemafulltrúi: Jóhanna Árnadóttir

Ritstjórar Slæðings: Óli Gneisti Sóleyjarson og Sigrún Ísleifsdóttir
Þorrablótsnefnd: Cilia Marianne Úlfsdóttir, Jóhanna Árnadóttir og Sigrún Ísleifsdóttir

Skorarfulltrúar / nemendafulltrúar: Eggert Sólberg Jónsson og Rósa Margrét Húnadóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2004-2005
Formaður: Kristín Birna Kristjánsdóttir
Gjaldkeri: Birna Rún Sævarsdóttir
Ritari: Brynhildur Sveinsdóttir

Þorrablótsnefnd: Áslaug Olga Heiðarsdóttir, Eiríkur Valdimarsson og Íris Dögg Hauksdóttir

Skorarfulltrúar: Birna Rún Sævarsdóttir og Eydís Björnsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2004-2005
Formaður: Bára Halldórsdóttir / Eydís Björnsdóttir
Gjaldkeri: Eydís Björnsdóttir
Ritari: Kristín Birna Kristjánsdóttir
Fulltrúi fyrsta árs nema: Sigrún Sigmarsdóttir

Þorrablótsnefnd: Birna Rún Sævarsdóttir, Brynhildur Sveinsdóttir og Íris Dögg Hauksdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2001-2002
Formaður: Guðrún Friðriksdóttir
Gjaldkeri: Þórdís Edda Guðjónsdóttir
Ritari: Pálína Björg Snorradóttir
Fulltrúi fyrsta árs nema: Hrönn Magnúsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 2000-2001
Formaður: Valgerður Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Ásdís Erla Jónsdóttir
Ritari: Hanna María Kristjánsdóttir
Fulltrúi fyrsta árs nema: Guðmunda Björnsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1999-2000
Formaður: Valgerður Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Ásdís Erla Jónsdóttir
Ritari: Hanna María Kristjánsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1998-1999
Formaður: Sigríður Inga Sigurðardóttir
Gjaldkeri: Guðrún Valdís
Ritari: Kristinn Schram

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1997-1998
Formaður: Kristín Einarsdóttir
Gjaldkeri: Árný
Ritari: Kristinn Schram

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1996-1997

Formaður: Berglind Ósk Kjartansdóttir
Gjaldkeri: Hulda Sigurdís Þráinsdóttir
Ritari: Björk Bjarnadóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1995-1996
Formaður: Ingibjörg Thorarensen
Gjaldkeri: Þór Hreinsson
Ritari: Svava Guðrún Sigurðardóttir
Meðstjórnandi: María Arinbjarnardóttir
Nemendafulltrúi: Rakel Pálsdóttir

Ritstjórar Þjóðbrókar: Þór Hreinsson og Björg Erlingsdóttir
Ferðanefnd: Inga Lára Sigurðardóttir, Ingibjörg Thorarensen, Björg Erlingsdóttir og Árný Þórólfsóttir
Áróðursmeistari: Inga Lára Sigurðardóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1994-1995
Formaður: Birna Mjöll Sigurðardóttir
Gjaldkeri: Rakel Pálsdóttir,
Ritari: Ingibjörg Thorarensen.
Meðstjórnandi: Þór Hreinsson
Nemendafulltrúi: Rakel Pálsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1993-1994
Formaður: Daníel Freyr Jónsson
Ritari: Birna M. Sigurðardóttir
Gjaldkeri: Þorbera Fjölnisdóttir
Meðstjórnandi: Christina Nordin

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1992-1993
Formaður: Valdimar Tryggvi Hafstein
Gjaldkeri: Jón Jónsson
Ritari: Marteinn Helgi Sigurðsson
Nemendafulltrúi: Rúna Knútsdóttir Tetzschner

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1991-1992
Formaður: Álfrún Guðríður Guðrúnardóttir
Gjaldkeri: Berglaug Skúladóttir
Ritari: Marteinn Helgi Sigurðsson
Varamaður: Andrea Sigrún Harðardóttir

Námsnefnd: Aldís Sigurðardóttir og Marteinn Helgi Sigurðsson
Fulltrúi nemenda í deildarráði: Andrea Sigrún Harðardóttir
Ritnefnd: Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Ragna Steinunn Eyjólfsdóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1990-1991
Formaður: Aldís Sigurðardóttir
Ritari: Álfrún Guðríður Guðrúnardóttir

Stjórn Þjóðbrókar veturinn 1989-1990
Formaður: Hanna Rós Sveinsdóttir
Gjaldkeri: Hákon Jóhann Hákonsson
Ritari: Guðrún Haraldsdóttir
Meðstjórnandi: Aldís Sigurðardóttir

Tómas V. Albertsson, þjóðfræðinemi hefur safnað upplýsingum um sögu þjóðfræðináms á Íslandi. Í safni hans má finna rit sem ekki eru fáanleg í geymslum bókasafna ríkis og sveitarfélaga. Honum eru færðar bestu þakkir fyrir.

Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra