ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT

Það hefur verið rætt og ritað. Hvar sem tveir hafa komið saman hefur verið hvíslað í hálfum hljóðum. Í dimmum húsasundum og yfirgefnum byggingarlóðum hafa menn hist og lagt á ráðin. Húsmæður eru farnar að vera varar um sig. Börn þora varla út lengur en sitja við herbergisgluggann og bíða þess sem verða vill. Hundar ýlfra og kettir horfa til himins. Gangur himintunglanna fer úr skorðum og í fjarska má heyra straum Elliðaánna minnka og minnka og minnka uns hann stöðvast.

Það er komið að því, Þorrablót þjóðfræðinema mun verða haldið í salnum í Sjóminjasafninu þann 25. febrúar næstkomandi. Húsið opnar á slaginu 19.00 og lokar því stundvíslega klukkan 01.00. Þessar sex klukkustundir verða stútfullar af þorramat, skemmtun og góðu glensi. Eins og venja er verða minnin flutt, vikivaki stiginn og raddböndin þaninn. Einnig verður hið sívinsæla happdrætti á sínum stað ásamt öðrum uppákomum sem við látum ekki uppi að svo stöddu. Það er enginn bar í húsinu (hjúkk maður) og því komum við sjálf með vökva sem kætir og bætir en hafa ber í huga að okkur er ekki heimilt að koma með neitt sem Fríhöfnin flokkar sem sterka drykki. Bjór og léttvín er því málið börnin góð.

Matseðill kvöldsins hljómar svo:
Brot af því besta úr fortíðinni í formi nútíma þorramats.
Lambalæri með gratíneruðum kartöflum, bökuðu rótargrænmeti, eplasalat, rauðvínssósa og heimalagað rauðkál.
Svo verður boðið upp á einhvern girnilegan grænmetisrétt fyrir þá sem ekki neyta kjéts en við viljum benda þeim utangarðsmönnum á að taka það fram við miðakaup!
Einnig verður boðið upp á kaffi og eitthvað sætt með því.

Miðasala fer fram dagana 3. og 4. febrúar milli klukkan 11 og 14. Miðaverð er krónur 5000 fyrir þjóðbrókaða en 6000 krónur fyrir óþjóðbrókaða. Miðasalan verður í Odda á 2. hæð, þið finnið okkur. Eins og tíðkast hefur þá eru makar já eða fjölskyldumeðlimir, gæludýr, vinir/vinkonur, átrúnaðargoð, fylgjur, eða allir nema blind stefnumót, (það er bara vandræðalegt) sérlega velkomnir á þessa hátíð okkar.

Skundum nú, öll sem eitt á þessa stórgóðu og ófjölskylduvænu skemmtun!
Þorrablótsnefndin ykkar í ár:
Alda, Auður, Elísa, Hrefna, Margrét og Vala

Dagskrá í staðlotu

Sælir allir þjóðfræðinemar

Nú í þessari viku er staðlota og fáum við þá loksins að líta fjarnemakrúttin okkar augum. Í tilefni af því hefur verið ávkeðin heljarinnar dagskrá sem hefst á miðvikudaginn. Hér kemur hún í öllu sínu veldi.

- Á miðvikudaginn verður farið í safnaferð með Kristínu Einarsdóttur á Sögusafnið í Perlunni. Nemendagjaldið þar eru 1.000.- krónur sem greiðast úr djúpum vösum þjóðfræðinema. Ekki er sérstök skráning á þennan viðburð heldur mætir fólk bara klukkan 15.00 í andyrið á Odda og sameina þar í bíla.

- Á fimmtudaginn ætlar stjórn Þjóðbrókar að taka ykkur í hugarleikfimi og leggja fyrir mannskapinn pub quiz, nema það verður haldið heima hjá Rögnu í Mávahlíð 26 (sjá viðburð á facebook) svo við köllum það home quiz.

- Á föstudaginn ætlum við að hafa sameiginlegan morgunmat með staðnemum, fjarnemum og kennurum, þ.e. allir velkomnir. Hver og einn mætir með eitthvað smáræði. Safnast þegar saman kemur. Það er auðvitað hægt að kaupa sér kaffi og bakkelsi í kaffistofum allt í kring en aðal málið er að hafa þetta bara einfalt. Staðsetningin er Gimli 103, fundarherbergið við hliðina á skrifstofunni hennar Ásu.

- Á laugardaginn næstkomandi ætla síðan þjóðfræðinemar og tæknimenn RÚV að skunda saman í hellaferð undir leiðsögn Kristínar Einarsdóttur Aðjúnkts. Farið verður frá byggingunni Odda í Háskóla Íslands og er mæting þar við innganginn stundvíslega klukkan 15.00. Þangað kemur rúta sem fer með okkur að hellinum.

Nauðsynlegt er að klæða sig vel, hafa hjálm og vasaljós. Boðið verður upp á kakó og “meððí” auk þess sem haldin verður tónlistaveisla í miðjum hellinum (fyrir þá sem þora inn). Kristín hefur lofað draugasögum og öðrum skemmtiatriðum eins og henni er von og vísa. Ég er nokkuð viss um að hún hafi óskað eftir hópsöng í rútunni á leiðinni heim ef ég man rétt, svo hitið vel upp raddböndin fyrir helgina.

Það er mjög mikilvægt að skrá sig og það gerir þú með því að borga ferðakostnaðinn fyrir hádegi á föstudaginn. Gjaldið eru litlar 1.200 krónur og skal sá peningur leggjast inn á reikning:

Reikningsnúmer 0137-26-017956
kennitalan 451089-1619.
Endilega sendið skýringuna “hellaferð” á oli1@hi.is.

Vonandi sjá sér sem flestir fært að mæta. Hlökkum óstjórnlega til að sjá ykkur öll.

Knús og gleði

Þjóðbrók

Ný önn, Nýnemar, ný ævintýri

Sælar Þjóðbrækur

Við viljum byrja á því að bjóða alla nýnema hjartanlega velkomna í Þjóðfræði og hvetja sem flesta að skrá sig í nemendafélagið okkar Þjóðbrók. Félagið okkar er mjög virkt á mörgum sviðum. Við reynum að flétta saman vísindaferðir, nördaferðir, fróðleik, kvikmyndakvöld, partý og kaffiboð svo allir finni sér eitthvað við sitt hæfi. Vorönn 2011 verður stútfull af skemmtilegum hlutum og má búast við stórum sem smáum viðburðum nánast vikulega. Á föstudaginn næsta verður haldið Nýnemakvöld og eru allir hvattir til þess að mæta. Við stefnum á að halda svokallaða Fáránleika þar sem keppt verður í allskonar óhefðbundnum greinum. Þessi viðburður verður auglýstur nánar á morgun eða hinn en endilega takið daginn frá strax. Við hvetjum auðvitað alla til að mæta og kynnast nýju nemendunum og auðvitað hvetjum við nýnema sérstaklega til að mæta.

Fyrir þá sem ekki hafa enn skráð sig í félagið eru reikningsupplýsingar að finna hér að neðan.

Þjóðbrók ‎… upplýsingar fyrir nýja meðlimi:
Þið leggið inn kr.2500 inn á eftirfarandi reikning:
Reikningsnúmer 0137-26-017956
kennitalan 451089-1619.
Endilega sendið skýringuna “félagsgjöld” á oli1@hi.is.

Við komum síðan skírteininu til ykkar fljótlega eftir það :)

Hlökkum til að fá ykkur öll inn í okkar dásamlega hóp og síðast en ekki síst viljum við sjá alla í keppnisskapi á föstudaginn!

Ást og appelsínur

Stjórnin

Grótta beibí!!

Jæja elsku fólk sem ætlar í Gróttu!


Hérna koma upplýsingar um ferðina góðu sem er á föstudaginn.

- Mæting er kl.20:45 á Snoppu (hjá Gróttu). Við röltum síðan saman þaðan og yfir í Gróttu.

- Síðasti sjens að fara yfir fyrir þá sem ætla ekki að gista er kl.01:00.

- Í Gróttu verður síðan smá kvöldvaka með úrvals draugasögum frá Kristínu og skemmtilegu spjalli og leikjum.

- Ef einhverjum dettur í hug einhverjir leikir eða einhverjar draugasögur til að segja um kvöldið/nóttina mega þeir endilega láta okkur í      stjórninni vita.

- Það eiga allir að koma með eitthvað til að setja á kvöldsnarlshlaðborð. :)

- Þeir sem vilja fá sér eitthvað áfengt mæta með það sjálfir.

- Þjóðbrók býður upp á morgunmat kl. 09:00 daginn eftir. Við komumst síðan yfir kl.09:30.

Það sem fólk þarf að koma með með sér:

- Vasaljós og Vaselín

- Svefnpoka

- Nasl á kvöldhlaðborðið

- Ýkt góða skapið

- Hlý föt/sundföt/náttföt

- Tannbursta og tannkrem

Við viljum endilega biðja ykkur að leggja inn á okkur kr.2000 fyrir ferðinni í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudag.

Reikningsnúmerið er:

0137-26-017956

kennitalan 451089-1619.

Endilega sendið skýringuna “Grótta” á oli1@hi.is

Ef eru frekari spurningar þá getið þið spurt okkur eða Kristínu. Annars hlökkum við alveg hrikalega til að eyða með ykkur nótt á Gróttu!

Kær kveðja,

Stjórnin

Grótta, ferðin sem allir hafa beðið eftir!

Sælar Þjóðbrækur

Þá er komið að hinni árlegu Gróttuferð. Farið verður föstudaginn 19 nóvember og gist yfir eina nótt. Það kostar 2000 krónur á mann (það er hækkun frá því í fyrra þar sem gistingin hefur hækkað töluvert síðan í síðast). Þjóðbrók blæðir morgunmat á línuna en glögg í brúsa (kjósir þú á annað borð að innbyrgða hann) og annar munaður er í höndum hvers og eins.

Dagsrká og hvernig þessu öllu verður háttað verður auglýst betur síðar en núna verða allir að skrá sig.

Það eru 30 svefnpláss svo það er um að gera að skrá sig sem fyrst. Síðast komust færri að en vildu!!! (reyndar fengu allir að koma með en þetta hljómar bara svo töff). Ef skráning er komin upp í 30 manns og það er enn fólk sem vill koma með bendum við þeim á að skrá sig samt þar sem við verðum með biðlista og reynum að koma til móts við sem flesta. Ef þið ætlið ekki að gista þá verðiði að taka það fram hér.

Koma svo!!! allir í Gróttu!! vúbb vúbb!!

Stjórnin

Lygileg gönguferð um miðbæinn og frummari! ómæ!!

Yndisfríðu Þjóðbrækur.

Í tilefni þess að nú er staðlota og fullt af fallegum brókum víðsvegar að af landinu staddir í borginni, höfum við ákveðið að bjóða í ótrúlega göngu um miðborgina. Við munum ausa úr lygilega djúpum viskubrunni okkar staðreyndum um menn og staði, hús, drauga og aðrar vættir í miðborginni sem þið hefðuð ekki annars trúað. Þjóðbrók mun bjóða upp á kakó sem hellt verður upp á eftir uppskrift Matthíasar Jochumsonar sem fannst á skjalasafni í Edinborg nýverið. Ekki væri verra að vera með örlítinn gleðvökva að eigin vali í bakpoka á meðan á göngunni stendur. Gangan mun taka um klukkutíma en að því loknu geta þyrstir og kaldir safnast saman á Prikinu og drukkið hlýju í kroppinn.

Mæting er við söluturninn á Lækjartorgi kl. 20.00.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórnin

P.S. Mælst er til þess að hverjar þær heimildir sem þið fáið í göngunni séu ekki notaðar við fræðiskrif, s.s. í B.A rigerðir.

Svo langar okkur Óla að misnota aðstöðu okkar: Hjérrh….

Í sumar fengum við Ólafur Ingibergsson og Björk Hólm styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að framkvæma verkefni undir leiðsögn Valdimars Tr. Hafstein. Við vorum semsagt að gera myndbönd eða stutta þætti upp úr gömlum þjóðfræðiritgerðum og vonandi mun það síðan nýtast til fræðslu eða kennslu í framhaldsskólum.

Nú er kominn tími til að við sýnum ykkur afrakstur vinnu okkar og ætlum við því að hafa frumsýningu á myndböndunum fimm á föstudaginn nk. Það verða sýnd 3 myndbönd fyrir hlé og 2 eftir hlé (jább, þetta er geggjað pró) og svo stuttar umræður á eftir.

Það myndi gleðja okkar litlu fallegu hjörtu ef þið gætuð séð ykkur fært að mæta.

kær kveðja
Björk og Óli

Kvikmyndakvöld og fyrirlestur

Kvikmyndakvöld. Jibbí!

Á morgun (þriðjudaginn 12. okt) ætlum við að hafa okkar annað kvikmyndakvöld og að þessu sinni mun það vera í umsjón Bergþóru Ólafar Björnsdóttur (Bebbu). Hún ætlar að sýna okkur myndina: This is England. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um myndina hér:

http://www.imdb.com/title/tt0480025/

Mæting í stofu 106 í Odda klukkan 19.30. Komiði með nammi og höfum það kósý ;)

Einnig viljum við minna á að:

Á fimmtudaginn stendur Félag þjóðfræðinga á Íslandi fyrir fyrirlestri í Háskóla Íslands. Erindið fer fram eins og áður segir á fimmtudaginn 14. okt í stofu 102 í Gimli klukkan 17.30

Fyrirlesari að þessu sinni er Louis James Young, Ojibway frumbyggi frá Manioba. Louis mun m.a. fjalla um fyrstu kynni Kristófers Kólumbusar af frumbyggjum, hvaðan hugtakið „indian“ kann að vera upprunið, hvaðan „andinn“ kemur og hvert hann fer auk þess að fjalla um samskipti okkar við Móður jörð.

Í dag starfar Louis við The All Nations Traditional Healing Centre í Manitoba. Þar aðstoðar hann frumbyggja sem urðu fyrir ofbeldi í heimavistarskólum sem voru reknir af kanadíska ríkinu og kaþólsku kirkjunni. Tilgangur skólanna var m.a. sá að „reka indjánann úr barninu“ og kenna því kanadískar vinnuaðferðir.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta og auðvitað eru allir velkomnir!

Ykkar ástkæra

Stjórn

Vísó í Friðó

Elsku krúttlegu Þjóðbrækur.

Þar sem við eru upp til hópa friðelskandi og spakar brækur finnst okkur tilvalið að fyrsta vísindaferð vetrarins verði í Friðarhúsið á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. Mæting þangað er kl. 20.00 og fáum við kynningu á starfsemi Friðarhússins og Félags hernaðarandstæðinga. Þeir sem eru svo ennþá þyrstir eftir vísindaferð geta trítlað í bæinn og nýtt sér einhverja af þeim afsláttum sem Þjóðbrækur fá t.d. á Prikinu og Íslenska barnum.

Skráning þarf að fara fram svo við getum áttað okkur á fjölda þátttakenda og fer hún fram í kommentakerfinu hér að neðan.

Allir að mæta og muna að skrá sig.

Pís and löv (nú frekar en nokkru sinni)

Stjórnin

Pub Quiz

Farið nú að hita upp heilasellurnar og teygja á taugaendunum því í kvöld ætlar Þjóðbrókin að skella sér í Pub Quiz. Gleðin fer fram á Kaffi Grand (sem er á Frakkastíg milli Laugavegs og Hverfisgötu) og er mæting kl. 20.00. Keppt verður eftir hefðbundnum Pub Quiz reglum, þ.e.a.s. tveir og tveir saman í liði. Keppendur mega gjarnan vera búnir að para sig saman áður en mætt er en ef einhver er ekki kominn með makker (félaga) reddum við því á staðnum því í Þjóðbrók er enginn skilinn útundan.

Bjór og skot verða seld allt kvöldið á litlar 350 kr. sem er náttúrulega bara gjöf en ekki gjald.

“Vegleg” verðlaun verða í boði eins og ávallt. Heildarverðmæti vinninga mun slaga hátt í verðið á einum bjór. Hvorki meira né minna!

Ert þú skarpasta Þjóðbrókin?

Ekki missa af þessu.

Laufskálaréttir og Kvikmyndakvöld

Minnum fólk á að borga staðfestingargjald í Laufskálaréttir. Allar upplýsingar í færslunni hér að neðan. Kooooma svooooo!

Annars verður hér í þessari færslu auglýst Kvikmyndakvöld:

Fyrsta kvikmyndkvöldið verður haldið þriðjudaginn 21. september í stofu 106 í Odda. Mæting klukkan 19:30 og myndin byrjar stundvíslega klukkan 19:45. Því miður getum við ekki boðið upp á popp að þessu sinni þar sem það er stranglega bannað að neyta veitinga inn í þessari stofu (það stendur í reglum og allt).

Sýningarstýra að þessu sinni er engin önnur en Guðrún Helgadóttir (ekki rithöfundurinn) og ætlar hún að kikk-starta þessu með myndinni Good Hair frá árinu 2009. Við látum Guðrúnu alfarið um að segja okkur frá myndinni þannig að sjón er sögu ríkari.

Hlökkum til að sjá ykkur öll

knús <3

Stjórnin