Fréttatilkynning – Þjóðbrók fer að heiman!

Opnun þjóðfræðisíðu á hlaðvarpi RÚV og frumsýning stuttmyndarinnar: “Hvað er þjóðfræði?”

Fimmtudag. 8 sept. kl. 17, á Háskólatorgi stofu 101. Mættum öll!

Nú eru rúm tíu ár liðin frá því að nemendum í þjóðfræði við Háskóla Íslands bauðst að vinna stutta útvarpsþætti í góðri samvinnu við starfsfólk Ríkisútvarpsins. Tveir þjóðfræðinemar fengu í sumar það verkefni að safna þáttunum saman til að hægt væri að hlusta á þá í hlaðvarpi útvarpsins. Efnið er eins og gefur að skilja fjölbreytt og forvitnilegt enda um það bil 150 þættir sem unnir hafa verið.

Fimmtudaginn 8. september ætlum við hér í námsbraut í þjóðfræði að kynna þetta verkefni og opna formlega fyrir aðgang að þáttunum á hlaðvarpi RÚV.

Eftir það munu Björk Holm og Ólafur Ingibergsson kynna og sýna nýja stuttmynd þeirra, “Hvað er þjóðfræði?” sem verður sett m. a. á vefsíðu Þjóðfræða.

Bestu kveðjur,

Terry, Valdimar, Aðalheiður og Kristín

Skráning í Þjóðbrók

tekur við skráningu í Þjóðbrók í dag kl.14:00 – 16:00 og á fimmtudaginn kl. 13:15 – 15:00 í Odda.. ATH! Þið þurfið ekki að koma með pening, bara segja nafn og kennitölu og við sendum reikning í heimabankann ykkar. :) Gjaldið er kr.4085 (85 kr. leggjast á sem seðilgjald)

Ef þið komist ekki getið þið sent nafn og kennitölu á Hrefnu á póstfang hrk10@hi.is

Nýnemakvöld Þjóðbrókar!

Nú er komið að því! Þjóðbrók býður nýnemakrúttin sín velkomin með hefðbundnum aðferðum næsta fimmtudagskvöld. Mæting er í Hljómskálagarðinn (hjá grillunum) kl.20:00 og eftir sprell þar förum við á knæpu í bænum og kjósum okkur nýnemafulltrúa og Þorrablótsnefnd. Eftir það verður síðan sötrað og spjallað fram á nótt og morgun..

Við hvetjum allar Þjóðbrækur, eldri sem yngri, að mæta og fagna öllum þeim nýju þjóðfræðinemum sem eru að hefja nám í haust.

LOKAHÓF ÞJÓÐBRÓKAR

Jæja kæru brækur nær og fjær.

Okkur datt í hug að gefa ykkur eitthvað til að hlakka til svona í miðri próflestrargleðinni.

Próflokadjammið okkar verður semsagt föstudaginn 13. maí. Þetta á eftir að fara í sögubækurnar eins og fyrri próflokapartý Þjóðbrókar. Ekkert verður gefið uppi um dagskrá dagsins að svo stöddu annað en að við munum fá að smakka á ýmsum útdauðum fuglategundum, heimsækja þjóðþekkta einstaklinga og hugsanlega fara út fyrir landsteinana. True story!

Nánari upplýsingar munu berast ykkur eftir því sem okkur þóknast en mikilvægt er að taka daginn frá alveg frá kl. 15.00, gera sig attending hérna, byrgja sig upp af sólskini og hamingju og vera dugleg að læra fyrir próf alveg þangað til.

Viðbúið er að við gætum þurft að rukka á bilinu 500-1000 kr. fyrir þjóðbrókarlimi en 1000-1500 kr. fyrir óþjóðbrókaða sem er gjöf en ekki gjald fyrir aðra eins skemmtun. Engin ákvörðun hefur hinsvegar verið tekin ennþá og verður auglýst betur síðar.

Þangað til … verið dugleg og gerið okkur stolt.

Ykkar elskandi stjórn.

vísó og fyró

Fögru brækur.

Nú er svo komið að Ölgerðin Egill Skallagrímsson vill ólm fá okkur í heimsókn á föstudaginn til að smakka bjórinn sinn. Þótti það okkur tilvalin hugmynd enda þykir brókunum bjórinn góður. Tumi, nemendafélag tómstunda- og félagsmálafræðinnar mun fá að fljóta með okkur og er í vinnslu að finna stað þar sem bæði félög geta sameinast eftir vísindaferðina og haldið áfram að drekka bjór á spottprís. Nánari upplýsingar um það koma fljótlega.

Við biðjum ykkur að athuga að við höfum bara pláss fyrir 30 manns svo þeir fyrstu sem gera sig “attending” á facebook OG kvitta í kommentum hafa tryggt sér sæti við barinn hjá Ölgerðinni. Ef þú ert ekki með facebook síðu nægir að kvitta hér í kommentakerfið og við sjáum þá hvort viðkomandi hafi náð inn eða ekki

Annað: Við höfum ennþá ekki fengið upplýsingar um nákvæma tímasetningu frá Ölgerðinni svo þessi tími er ágiskun. Fylgist með þegar nær dregur og rétt tímasetning verður komin.

Einnig langar okkur að kynna fyrirlestur sem fer fram á föstudaginn frá klukkan 14.00 – 15.00. Hann ber nafnið:

Why Cinderella’s Mother Becomes a Cow: An Experiment in Cultural Triangulation

Þjóðfræðingurinn Francisco Vaz da Silva er prófessor við við ISCTE háskólastofnunina í Lissabonn og hefur sérhæft sig í táknheimi þjóðsögunnar og táknfræði alþýðuhefða almennt. Hann er höfundur bókanna Metamorphosis: The Dynamics of Symbolism in European Fairy Tales (2004) og Archeology of Intangible Heritage (2008) og hefur ritað mikinn fjölda greina um hugfræði, heimsmyndarfræði (kosmólógíu), ævintýri og ýmsar sögur, siði og sagnaminni: Varúlfa, kokkála, nornir, hamskipti, drekabana, blæðingar, sjöundu börn, Rauðhettu og Öskubusku, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Svo þið sjáið að þessi skemmtilegi föstudagur verður sneisafullur af fjöri!

ást og appelsínur

Þjóðbrók
ykkar elskandi stjórn.

Síðasti sjens!!

Takið eftir eftirlegukindur!

Þið ykkar sem EKKI hafið tryggt ykkur miða á þorrablótið ennþá eigið ennþá séns. Með því að leggja inn á reikning Þjóðbrókar FYRIR MIÐNÆTTI Á SUNNUDAG getið þið nælt ykkur í miða. Mikilvægt er að skrifa “þorrablót” í skýringu og senda kvittun á oli1@hi.is. Miðarnir verða svo afhentir við innganginn þegar mætt er til blótsins.

Reikningsnr.: 0137-26-017956
Kennit.: 451089-1619

ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT

Það hefur verið rætt og ritað. Hvar sem tveir hafa komið saman hefur verið hvíslað í hálfum hljóðum. Í dimmum húsasundum og yfirgefnum byggingarlóðum hafa menn hist og lagt á ráðin. Húsmæður eru farnar að vera varar um sig. Börn þora varla út lengur en sitja við herbergisgluggann og bíða þess sem verða vill. Hundar ýlfra og kettir horfa til himins. Gangur himintunglanna fer úr skorðum og í fjarska má heyra straum Elliðaánna minnka og minnka og minnka uns hann stöðvast.

Það er komið að því, Þorrablót þjóðfræðinema mun verða haldið í salnum í Sjóminjasafninu þann 25. febrúar næstkomandi. Húsið opnar á slaginu 19.00 og lokar því stundvíslega klukkan 01.00. Þessar sex klukkustundir verða stútfullar af þorramat, skemmtun og góðu glensi. Eins og venja er verða minnin flutt, vikivaki stiginn og raddböndin þaninn. Einnig verður hið sívinsæla happdrætti á sínum stað ásamt öðrum uppákomum sem við látum ekki uppi að svo stöddu. Það er enginn bar í húsinu (hjúkk maður) og því komum við sjálf með vökva sem kætir og bætir en hafa ber í huga að okkur er ekki heimilt að koma með neitt sem Fríhöfnin flokkar sem sterka drykki. Bjór og léttvín er því málið börnin góð.

Matseðill kvöldsins hljómar svo:
Brot af því besta úr fortíðinni í formi nútíma þorramats.
Lambalæri með gratíneruðum kartöflum, bökuðu rótargrænmeti, eplasalat, rauðvínssósa og heimalagað rauðkál.
Svo verður boðið upp á einhvern girnilegan grænmetisrétt fyrir þá sem ekki neyta kjéts en við viljum benda þeim utangarðsmönnum á að taka það fram við miðakaup!
Einnig verður boðið upp á kaffi og eitthvað sætt með því.

Miðasala fer fram dagana 3. og 4. febrúar milli klukkan 11 og 14. Miðaverð er krónur 5000 fyrir þjóðbrókaða en 6000 krónur fyrir óþjóðbrókaða. Miðasalan verður í Odda á 2. hæð, þið finnið okkur. Eins og tíðkast hefur þá eru makar já eða fjölskyldumeðlimir, gæludýr, vinir/vinkonur, átrúnaðargoð, fylgjur, eða allir nema blind stefnumót, (það er bara vandræðalegt) sérlega velkomnir á þessa hátíð okkar.

Skundum nú, öll sem eitt á þessa stórgóðu og ófjölskylduvænu skemmtun!
Þorrablótsnefndin ykkar í ár:
Alda, Auður, Elísa, Hrefna, Margrét og Vala

Dagskrá í staðlotu

Sælir allir þjóðfræðinemar

Nú í þessari viku er staðlota og fáum við þá loksins að líta fjarnemakrúttin okkar augum. Í tilefni af því hefur verið ávkeðin heljarinnar dagskrá sem hefst á miðvikudaginn. Hér kemur hún í öllu sínu veldi.

- Á miðvikudaginn verður farið í safnaferð með Kristínu Einarsdóttur á Sögusafnið í Perlunni. Nemendagjaldið þar eru 1.000.- krónur sem greiðast úr djúpum vösum þjóðfræðinema. Ekki er sérstök skráning á þennan viðburð heldur mætir fólk bara klukkan 15.00 í andyrið á Odda og sameina þar í bíla.

- Á fimmtudaginn ætlar stjórn Þjóðbrókar að taka ykkur í hugarleikfimi og leggja fyrir mannskapinn pub quiz, nema það verður haldið heima hjá Rögnu í Mávahlíð 26 (sjá viðburð á facebook) svo við köllum það home quiz.

- Á föstudaginn ætlum við að hafa sameiginlegan morgunmat með staðnemum, fjarnemum og kennurum, þ.e. allir velkomnir. Hver og einn mætir með eitthvað smáræði. Safnast þegar saman kemur. Það er auðvitað hægt að kaupa sér kaffi og bakkelsi í kaffistofum allt í kring en aðal málið er að hafa þetta bara einfalt. Staðsetningin er Gimli 103, fundarherbergið við hliðina á skrifstofunni hennar Ásu.

- Á laugardaginn næstkomandi ætla síðan þjóðfræðinemar og tæknimenn RÚV að skunda saman í hellaferð undir leiðsögn Kristínar Einarsdóttur Aðjúnkts. Farið verður frá byggingunni Odda í Háskóla Íslands og er mæting þar við innganginn stundvíslega klukkan 15.00. Þangað kemur rúta sem fer með okkur að hellinum.

Nauðsynlegt er að klæða sig vel, hafa hjálm og vasaljós. Boðið verður upp á kakó og “meððí” auk þess sem haldin verður tónlistaveisla í miðjum hellinum (fyrir þá sem þora inn). Kristín hefur lofað draugasögum og öðrum skemmtiatriðum eins og henni er von og vísa. Ég er nokkuð viss um að hún hafi óskað eftir hópsöng í rútunni á leiðinni heim ef ég man rétt, svo hitið vel upp raddböndin fyrir helgina.

Það er mjög mikilvægt að skrá sig og það gerir þú með því að borga ferðakostnaðinn fyrir hádegi á föstudaginn. Gjaldið eru litlar 1.200 krónur og skal sá peningur leggjast inn á reikning:

Reikningsnúmer 0137-26-017956
kennitalan 451089-1619.
Endilega sendið skýringuna “hellaferð” á oli1@hi.is.

Vonandi sjá sér sem flestir fært að mæta. Hlökkum óstjórnlega til að sjá ykkur öll.

Knús og gleði

Þjóðbrók

Ný önn, Nýnemar, ný ævintýri

Sælar Þjóðbrækur

Við viljum byrja á því að bjóða alla nýnema hjartanlega velkomna í Þjóðfræði og hvetja sem flesta að skrá sig í nemendafélagið okkar Þjóðbrók. Félagið okkar er mjög virkt á mörgum sviðum. Við reynum að flétta saman vísindaferðir, nördaferðir, fróðleik, kvikmyndakvöld, partý og kaffiboð svo allir finni sér eitthvað við sitt hæfi. Vorönn 2011 verður stútfull af skemmtilegum hlutum og má búast við stórum sem smáum viðburðum nánast vikulega. Á föstudaginn næsta verður haldið Nýnemakvöld og eru allir hvattir til þess að mæta. Við stefnum á að halda svokallaða Fáránleika þar sem keppt verður í allskonar óhefðbundnum greinum. Þessi viðburður verður auglýstur nánar á morgun eða hinn en endilega takið daginn frá strax. Við hvetjum auðvitað alla til að mæta og kynnast nýju nemendunum og auðvitað hvetjum við nýnema sérstaklega til að mæta.

Fyrir þá sem ekki hafa enn skráð sig í félagið eru reikningsupplýsingar að finna hér að neðan.

Þjóðbrók ‎… upplýsingar fyrir nýja meðlimi:
Þið leggið inn kr.2500 inn á eftirfarandi reikning:
Reikningsnúmer 0137-26-017956
kennitalan 451089-1619.
Endilega sendið skýringuna “félagsgjöld” á oli1@hi.is.

Við komum síðan skírteininu til ykkar fljótlega eftir það :)

Hlökkum til að fá ykkur öll inn í okkar dásamlega hóp og síðast en ekki síst viljum við sjá alla í keppnisskapi á föstudaginn!

Ást og appelsínur

Stjórnin

Grótta beibí!!

Jæja elsku fólk sem ætlar í Gróttu!


Hérna koma upplýsingar um ferðina góðu sem er á föstudaginn.

- Mæting er kl.20:45 á Snoppu (hjá Gróttu). Við röltum síðan saman þaðan og yfir í Gróttu.

- Síðasti sjens að fara yfir fyrir þá sem ætla ekki að gista er kl.01:00.

- Í Gróttu verður síðan smá kvöldvaka með úrvals draugasögum frá Kristínu og skemmtilegu spjalli og leikjum.

- Ef einhverjum dettur í hug einhverjir leikir eða einhverjar draugasögur til að segja um kvöldið/nóttina mega þeir endilega láta okkur í      stjórninni vita.

- Það eiga allir að koma með eitthvað til að setja á kvöldsnarlshlaðborð. :)

- Þeir sem vilja fá sér eitthvað áfengt mæta með það sjálfir.

- Þjóðbrók býður upp á morgunmat kl. 09:00 daginn eftir. Við komumst síðan yfir kl.09:30.

Það sem fólk þarf að koma með með sér:

- Vasaljós og Vaselín

- Svefnpoka

- Nasl á kvöldhlaðborðið

- Ýkt góða skapið

- Hlý föt/sundföt/náttföt

- Tannbursta og tannkrem

Við viljum endilega biðja ykkur að leggja inn á okkur kr.2000 fyrir ferðinni í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudag.

Reikningsnúmerið er:

0137-26-017956

kennitalan 451089-1619.

Endilega sendið skýringuna “Grótta” á oli1@hi.is

Ef eru frekari spurningar þá getið þið spurt okkur eða Kristínu. Annars hlökkum við alveg hrikalega til að eyða með ykkur nótt á Gróttu!

Kær kveðja,

Stjórnin