Bjórkvöld

Þjóðbrók stendur fyrir bjórkvöldi á Hverfisbarnum fimmtudaginn 16. október. Gleðin hefst klukkan 21:00 og stendur eins lengi og þið óskið, eða þangað til að staðurinn lokar. Háskólanemar fá bjórin á 390 krónur sem er kostaboð. Það er um að gera að lyfta sér upp fyrir vinnutörn í lesvikunni og hita sig upp fyrir þétta dagskrá [...]

Laufskálaréttir!!!!

Kæru Þjóðbrókarfélagar og þjóðfræðinemar. Við hyggjumst fara í menningarreysu norður í land þann 27.september til að vera viðstödd stóðréttir þar í sveit. Þennan ágæta laugardagsmorgun munum við leggja af stað klukka 8 til að vera mætt tímanlega. Eftir réttirnar er okkur boðið í einkar þjóðlega kjötsúpu að Hólum og svo munum við skunda í Hólakirkju [...]

Haustþing Þjóðfræðistofu

“Þjóðfræðistofa býður þjóðfræðinema sérstaklega velkomna á Haustþing, laugardaginn 13. september kl. 15:00, Höfðagötu 3 á Hólmavík, þar sem fræðasetrið verður kynnt fyrir áhugasömum. Þá mun Cliona O’Carroll flytja erindi um gerð þjóðfræðilegra útvarpsþátta en Cliona er lektor við Háskólann í Cork á Írlandi og situr í fagráði Þjóðfræðistofu. Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt [...]

Nemendafundur/nýnemakvöld

Valdimar og Terry ætla að halda nemendafund miðvikudaginn 10 september kl. 17 í stofu 101 í Odda. Á fundinn mætir kennari frá Cork, Dr Cliona Ó Carroll, sem ætlar að segja frá Erasmus námi í Cork. Auk þess ætlar Valdimar að segja frá MA námi í Þjóðfræði. Breytingarnar sem áttu sér nýverið stað innan HÍ [...]

Dagskrá Stúdentadaga

Hér er dagskrá stúdentadaga. Ef þið hafið áhuga á að stofna fótbolta- og/eða gettu betur lið tjáið ykkur þá endilega um það í commentakerfinu. Fimmtudagur 28. ágúst DAGUR: 11:30-13:30 Nemendafélög í verkfræði- og náttúruvísindasviði og félagsvísindasviði kynna starfsemi sína á hæðinni f.neðan Háskólatorg. Föstudagur 29. ágúst DAGUR: 11:30-13:30 Nemendafélög á hugvísindasviði kynna starfsemi sína á [...]

Þjóðfræði og þakkarskuld: Áttræðisþing til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni

Þjóðfræði og þakkarskuld: Áttræðisþing til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni Föstudaginn 30. mars 2007, 13.00-18.00 Þjóðminjasafni Íslands Dagskrá 13.00-14.00: Þjóðfræði og þakkarskuld Valdimar Tr. Hafstein: Inngangsorð Katla Kjartansdóttir: Fávíst barn fetar fræðimannsins braut Kristinn Schram: “Ágætt að hafa svolítinn húmor” Kaffihlé – 14.00-14.30 14.30-15.30: Að fortíð skal hyggja … Málstofustjóri: Anna Þrúður Þorkelsdóttir Jón Jónsson: Á [...]

Vísindaferð í Framsóknarflokkinn

Næsta föstudag (23. mars) býður Framsóknarflokkurinn okkur í heimsókn til sín að Hverfisgötu 33 frá kl. 17-19. Óþarfi er að skrá sig sérstaklega (þó þið megið það að sjálfsögðu). Að heimsókn lokinni stefnum við að því að fara saman út að borða og loks í partý. Þetta verður því hinn skemmtilegasti föstudagur.