Þjóðbrók vikunnar #16

Hér kemur síðasta þjóðbrókin á þessu ári.
Nafn? Valdimar Tryggvi Hafstein
Hvaðan kemur nafnið? Frá öfum tveimur og þangað lengra aftan úr ættum. Hafstein segir sagan að sé upphaflega viðurnefni sem færeyskur skipbrotsmaður fékk eftir að hann bjargaðist úr sjávarháska þar sem aðrir bátsmenn fórust og “flaut” langa leið um opið haf áður en hann rak loksins [...]

Þjóðbrók vikunnar #15

…og fleiri kennarar mæta til yfirheyrslu.
Nafn? Terry Gunnell
Hvaðan kemur nafnið? Nafnið Terence Adrian kemur líklega frá pabba, sem fannst að ég ætti annaðhvort að vera leikari (Terence), eða hárgreiðslumaður (Adrian).
Hvenær komstu í heiminn? 7 júli 1955
Uppeldisstöðvar? Brighton and ‘ove… Þá Birmingham.
Af hverju þjóðfræði? Af hverju ekki?
Stendur til að læra eitthvað meira? Maður er sífellt að [...]

Þjóðbrók vikunnar #14

Áfram höldum við að yfirheyra kennarana.
Nafn? Aðalheiður Guðmundsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Frá aðalpersónu samnefndrar sögulegrar skáldsögu eftir C. Davies
Hvenær komstu í heiminn? Þann 7. mars 1965
Uppeldisstöðvar? Fyrstu sex árin ólst ég upp á Innra-Leiti á Skógarströnd, en eftir það í Hafnarfirði (þar af nokkur ár á Straumi – hvíta og rauða burstabænum sem allir keyra fram [...]

Þjóðbrók vikunnar #13

Í desember sitja flestir nemendur sveittir við prófaundirbúning en það er nauðsynlegt að taka smá pásur af og til. Í desember verða nokkrir kennarar þjóðbrækur vikunnar. Þannig hjálpa þeir okkur að finna eitthvað til að skoða þegar einbeitingarskorturinn hrjáir nemendur þeirra.
Nafn? Kristín Einarsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? skírð eftir móðursystur minni sem dó af barnsförum rúmlega tvitug [...]

Þjóðbrók vikunnar #12

Nafn? Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ingibjörg er frá ömmu minni og Hanna frá systur hennar
Hvenær komstu í heiminn? 25. nóvember 1984, 2 mínútur fyrir miðnættið. Mamma og ljósmóðirin voru ekki sammála um tímasetninguna því mamma leit á klukkuna rétt eftir að ég fæddist en ljósmóðirin þegar hún var eitthvað búin að stússast með mig. [...]

Þjóðbrók vikunnar #11

Nafn? Bryndís Björgvinsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Pabba fannst töff að láta mig heita einhverju nafni sem byrjar á -B, hann er svo mikið fyrir höfuðstafi og stuðla.
Hvenær komstu í heiminn? Um klukkan 07:20 24. mars 1982.
Uppeldisstöðvar? Hafnarfjörður City!
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Ég var í MH á árunum 1998-2002.
Af hverju þjóðfræði? Það var helber tilviljun. Ég [...]

Þjóðbrók vikunnar #10

Sigrún á afmæli í dag. Við óskum henni til hamingju með daginn.

Nafn? Mér var gefið nafnið Sigrún Sigmarsdóttir og var skírð það líka
Hvaðan kemur nafnið? Ég er skírð í höfuðið á frænku minni. Mamma ákvað strax að hún myndi skíra eftir henni, og þegar þriðja stelpan hennar fæddist þá sagði [...]

Þjóðbrók vikunnar #9

Nafn? Hugrún Lukka Guðbrandsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Pabba mínum datt það í hug þegar að hann sá mig fæðast og síðan var kosið um það.
Hvenær komstu í heiminn? laugardaginn 30. apríl 1983
Uppeldisstöðvar? Staðarhraun í Hraunhrepp á mýrum
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? frá FVA í desember 2003
Af hverju þjóðfræði? Af því mér fannst það áhugavert.
Hvar ertu stödd [...]

Þjóðbrók vikunnar #8

Nafn? Tómas Vilhjálmur Albertsson
Hvaðan kemur nafnið? Föður og langafa
Hvenær komstu í heiminn? 22 jan 1960 Biloxi, Mississippi, USA
Uppeldisstöðvar? Sauðárkrókur
Af hverju þjóðfræði? Almennur áhugi á þjóðfræði
Hvar ertu staddur í náminu? er að skrifa BA ritgerðina
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Þjóðfræði sem regnhlíf fyrir þetta allt saman
Hvað var í kvöldmatinn í gær? steiktar pylsur með beikon og [...]

Þjóðbrók vikunnar #7

Nafn? Þórunn Kjartansdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ömmu systir mín átti að heita Þórunn en presturinn vildi ekki skíra hana svona ókristilegu nafni, þannig að hún var látin heita Kristólína. Ég heiti því óbeint í höfuðið á hennni.
Hvenær komstu í heiminn? Rétt fyrir kaffið 2 júní 1983
Uppeldisstöðvar? alla tíð hef ég búið í Nýjubúð í Eyrarsveit
Hvenær og [...]

Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra