Laufskálaréttir

Jæja kæru Þjóðbrækur Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Ferð í Laufskálaréttir, vúbb vúbb! Laggt verður af stað stundvíslega klukkan 07:00 á laugardagsmorgun þann 25 september. Við stefnum á að vera komin í réttirnar áður en stóðið er rekið inn í réttirnar þar sem það er af sjálfsögðu mjög stór þáttur [...]

Leikur í að rata = Ratleikur. Jibbí!

Þjóðbrók ætlar að skella sér í ratleik á föstudaginn. Hann byrjar klukkan 20:00 á Prikinu þar sem skipt verður í fjögur lið. Það geta allir tekið þátt, ungir sem aldnir. Eins eins og eldri Þjóðbrækur muna þá var truflað stuð síðast og spennan í hámarki. Nauðsynlegt er að koma með: – Myndavél/myndavélasíma sem hægt er [...]

Síðasti séns!

Þeir sem enn eiga eftir að skrá sig í félagið geta millifært 4000 kr. á reikning Þjóðbrókar. Það verður að gerasta í síðasta lagi fyrir kl. 12 á hádegi á miðvikudag. Reikningsnúmerið er 0137-26-017956 og kennitalan 451089-1619. Megið gjarnan setja “félagsgjöld” í skýringu og senda kvittun á oli1@hi.is. písandlöv Stjórnin

Ný önn, ný þjóðbrók en sama gamla stuðið!

Sælir þjófræðinemar “gamlir” sem nýir. Nú er skólinn kominn á fulla ferð og því ekki seinna vænna en að skella félagsstarfinu á sama skrið. Við ætlum að hefja stuðið á nýnemakvöldi nk. fimmtudagskvöld þar sem við vígjum inn nýjar þjóðbrækur og leggjum línurnar að góðu og skemmtilegu félagsstarfi í vetur. Til þess að nýnemarnir okkar [...]

Aðalfundur og lokahóf

Þjóðbrækur nær og fjær! Á laugardaginn er lokahóf og aðalfundur eins og öllum ætti nú að vera kunnugt. Búið er að senda póst til allra sem ætla að vera með, en ef einhver hefur sofnað á verðinum og er ekki búin(n) að skrá sig er við hæfi að gera það bara alveg núna strax! Semsagt, [...]

Aðalfundur og framboð í stjórn Þjóðbrókar

Þjóðbrækur nær og fjær! Laugardaginn 8. maí verður haldið heljarinnar lokahóf og aðalfundur og munum við auglýsa bæði fundin og hófið betur síðar. En þið þjóðbrækur sem getið hugsað ykkur að að sitja í stjórn næsta skólaárs, megið nú glenna upp glirnurnar. Núna er nefninlega kominn tími á að senda inn framboð! Framboð í verðandi [...]

Dagskrá Þjóðbrókar

Kæru þjóðfræðiblóm Núna hefur stjórnin ákveðið að hafa vit fyrir ykkur og skipuleggja enga fylleríshittinga (í dulbúningi menningar) og annan sora sem viðgengist hefur á undanförnum mánuðum. Núna þurfum við að hysja upp um okkur, taka námið alvarlega og stúdera fyrir próf! Því er það okkar von að við getum tekið höndum saman og sparað [...]

Menningarferð í Borgarnes

Nú hefur ekkert gerst hjá okkur í lengri tíma (enda voru nokkrir hólí deis þarna inn í) og margir orðnir óþreyjufullir að hitta aðra yfir bjór og menningu. Því ætlum við að halda áfram og sjá hvernig landsbyggðarfólk skemmtir sér, nánar tiltekið hvernig Halli og aðrir Borgnesingar skemmta sér. Við ætlum að keyra í gegnum [...]

Menningarvika Þjóðbrókar-önnur leiksýning

Kæru þjóðfræðinemar Nú er komið að annarri leiksýningunni þessa vikuna og hefur verið ákveðið að fara á sýningu Þjóðleikhússins á verki Halldórs Laxness – Gerplu. Um leikstjórn sá Baltasar Kormákur. Við fáum 20 miða á sýninguna á fimmtudaginn kl. 20 og kostar miðinn 1.500 kr – kostaboð fyrir auralitla námsmenn. Þjóðleikhúsið hefur þetta að segja [...]

Menningarvika Þjóðbrókar

Við höfum tekið þá ákvörðun að vera afar menningarleg í komandi viku og ætlum við að byrja á því að sjá Kvennó Eddu. Það er leikfélagið Fúría í Kvennaskólanum sem sýnir þetta verk eftir Árna Kristjánsson en það er í leikstjórn hans sjálfs sem og Bryndísar Óskar Þ. Ingvarsdóttur. Kvennó Edda er verk um örlög [...]