Litlu jól þjóðfræðinema

20. desember, kl. 20 ætlum við að halda okkar eigin litlu jól heima hjá Eggert, Hulduhlíð 7 (2.h) í Mosfellsbæ. Allir að koma með lítinn pakka (ekki dýrari en 500 kr.) og smákökur. Förum í Litlujólapöbbkviss með glæsilegum vinningum. Fögnum próflokum og gerum eitthvað gaman saman fyrir jólin!

Leikhúsferð

Þjóðfræðinemum býðst tækifæri til að sjá Gunnlaðar sögu í Hafnarfjarðarleikhúsinu á mjög góðum kjörum. Eftir sýninguna verða umræður um myndmál, goðsögur o. fl. við leikstjórann og leikara. Við auglýsum verð og hvar hægt er að nálgast miða á allra næstu dögum. Gunnlaðar saga fjallar um unga, íslenska stúlku, Dís, sem handtekin er í Kaupmannahöfn fyrir [...]

Þjóðarspegilinn 2006

Sjöunda félagsvísindaráðstefna Háskóla Íslands verður haldin af lagadeild, félagsvísindadeild og viðskipta- og hagfræðideild í Odda og Lögbergi föstudaginn 27. október nk. frá kl 09:00 til 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Dagskrá frá kl. 13:00-15:00 Stofa: Oddi 202 Þjóðfræði Gísli Sigurðsson – Mynd Íslendingasagna af Bretlandseyjum Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir – Menningararfurinn og [...]

Keilukvöld

Keiluhöllin og Kaffibrennslan Mæting er klukkan 20 í Keiluhöllina í Öskjuhlíð og í framhaldi af því er hugmyndin að halda á Kaffibrennsluna og eiga góða kvöldstund saman. Félagsskírteini Þjóðbrókar verða vonandi tilbúin fyrir helgina og verður þeim þá dreift þetta kvöld.

Ferð í Reykholt og sumarbústað

Þá er komið að því að við ætlum að leggja land undir fót, helgina 14.-15.október. Lagt verður af stað frá Reykjavík um kl. 14, laugardaginn 14.október. Gert er ráð fyrir að fólk verði á einkabílum og er hugmyndin að safnast saman við Borgarnes. Þaðan verðum við samferða upp í Reykholt þar sem við munum fá [...]