Fræðaskrif
Þjóðfræðinemabloggið (um námið og fræðin)
Bloggið er ætlað þjóðfræðinemum og þjóðfræðingum til að tjá sig um þjóðfræðina og það sem henni tengist. Nemendur sem stundað hafa nám erlendis geta t.d. miðlað reynslu sinni á blogginu. Vonandi spinnast þarna skemmtilegar umræður í framhaldinu.
Þið sem eruð útskrifuð, hvort sem er í útlöndum eða hér heima ættuð líka að stökkva fram á ritvöllinn.
Þeir sem ekki fatta hvernig kerfið hérna virkar mega, til dæmis með því að leggja inn athugasemd í kommentakerfið.
Slæðingur
Vonandi gera flestir þjóðfræðinemar sér grein fyrir því að í vor var gefið út blaðið Slæðingur. Almennt álit var að blaðið væri stórkostlegt og stórbrotið (en þó í litlu broti). Snemma á næsta ári verður gefið út annað tölublað sem verður væntanlegra meira um sig en hið síðasta (en þó í sama broti). Við viljum endilega fá áhugaverðar og skemmtilegar greinar í það frá ykkur nemum og nýútskrifuðum. Aðalþemað er nútímaþjóðfræði en við hleypum inn greinum þó þær falli ekki undir það. Slæðingur hefur tölvupóstfangið slaedingur@gmail.com sem þið getið sent greinar á.
Önnur vefrit
En þið getið skrifað á fleiri vígstöðvum en Slæðingi. Á vefritinum Hugsandi má finna þó nokkrar greinar um þjóðfræði. Það mætti alveg fjölga þeim greinum aðeins. Óli Gneisti er tilbúinn að vera milliliður í samskiptum við ritstjórn Hugsandi ef einhver vill skrifa fyrir vefritið.