Fréttatilkynning – Þjóðbrók fer að heiman!
Opnun þjóðfræðisíðu á hlaðvarpi RÚV og frumsýning stuttmyndarinnar: “Hvað er þjóðfræði?”
Fimmtudag. 8 sept. kl. 17, á Háskólatorgi stofu 101. Mættum öll!
Nú eru rúm tíu ár liðin frá því að nemendum í þjóðfræði við Háskóla Íslands bauðst að vinna stutta útvarpsþætti í góðri samvinnu við starfsfólk Ríkisútvarpsins. Tveir þjóðfræðinemar fengu í sumar það verkefni að safna þáttunum saman til að hægt væri að hlusta á þá í hlaðvarpi útvarpsins. Efnið er eins og gefur að skilja fjölbreytt og forvitnilegt enda um það bil 150 þættir sem unnir hafa verið.
Fimmtudaginn 8. september ætlum við hér í námsbraut í þjóðfræði að kynna þetta verkefni og opna formlega fyrir aðgang að þáttunum á hlaðvarpi RÚV.
Eftir það munu Björk Holm og Ólafur Ingibergsson kynna og sýna nýja stuttmynd þeirra, “Hvað er þjóðfræði?” sem verður sett m. a. á vefsíðu Þjóðfræða.
Bestu kveðjur,
Terry, Valdimar, Aðalheiður og Kristín
Discussion Area - Leave a Comment