vísó og fyró

Fögru brækur.

Nú er svo komið að Ölgerðin Egill Skallagrímsson vill ólm fá okkur í heimsókn á föstudaginn til að smakka bjórinn sinn. Þótti það okkur tilvalin hugmynd enda þykir brókunum bjórinn góður. Tumi, nemendafélag tómstunda- og félagsmálafræðinnar mun fá að fljóta með okkur og er í vinnslu að finna stað þar sem bæði félög geta sameinast eftir vísindaferðina og haldið áfram að drekka bjór á spottprís. Nánari upplýsingar um það koma fljótlega.

Við biðjum ykkur að athuga að við höfum bara pláss fyrir 30 manns svo þeir fyrstu sem gera sig “attending” á facebook OG kvitta í kommentum hafa tryggt sér sæti við barinn hjá Ölgerðinni. Ef þú ert ekki með facebook síðu nægir að kvitta hér í kommentakerfið og við sjáum þá hvort viðkomandi hafi náð inn eða ekki

Annað: Við höfum ennþá ekki fengið upplýsingar um nákvæma tímasetningu frá Ölgerðinni svo þessi tími er ágiskun. Fylgist með þegar nær dregur og rétt tímasetning verður komin.

Einnig langar okkur að kynna fyrirlestur sem fer fram á föstudaginn frá klukkan 14.00 – 15.00. Hann ber nafnið:

Why Cinderella’s Mother Becomes a Cow: An Experiment in Cultural Triangulation

Þjóðfræðingurinn Francisco Vaz da Silva er prófessor við við ISCTE háskólastofnunina í Lissabonn og hefur sérhæft sig í táknheimi þjóðsögunnar og táknfræði alþýðuhefða almennt. Hann er höfundur bókanna Metamorphosis: The Dynamics of Symbolism in European Fairy Tales (2004) og Archeology of Intangible Heritage (2008) og hefur ritað mikinn fjölda greina um hugfræði, heimsmyndarfræði (kosmólógíu), ævintýri og ýmsar sögur, siði og sagnaminni: Varúlfa, kokkála, nornir, hamskipti, drekabana, blæðingar, sjöundu börn, Rauðhettu og Öskubusku, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Svo þið sjáið að þessi skemmtilegi föstudagur verður sneisafullur af fjöri!

ást og appelsínur

Þjóðbrók
ykkar elskandi stjórn.

Discussion Area - Leave a Comment