ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT- ÞORRABLÓT
Það hefur verið rætt og ritað. Hvar sem tveir hafa komið saman hefur verið hvíslað í hálfum hljóðum. Í dimmum húsasundum og yfirgefnum byggingarlóðum hafa menn hist og lagt á ráðin. Húsmæður eru farnar að vera varar um sig. Börn þora varla út lengur en sitja við herbergisgluggann og bíða þess sem verða vill. Hundar ýlfra og kettir horfa til himins. Gangur himintunglanna fer úr skorðum og í fjarska má heyra straum Elliðaánna minnka og minnka og minnka uns hann stöðvast.
Það er komið að því, Þorrablót þjóðfræðinema mun verða haldið í salnum í Sjóminjasafninu þann 25. febrúar næstkomandi. Húsið opnar á slaginu 19.00 og lokar því stundvíslega klukkan 01.00. Þessar sex klukkustundir verða stútfullar af þorramat, skemmtun og góðu glensi. Eins og venja er verða minnin flutt, vikivaki stiginn og raddböndin þaninn. Einnig verður hið sívinsæla happdrætti á sínum stað ásamt öðrum uppákomum sem við látum ekki uppi að svo stöddu. Það er enginn bar í húsinu (hjúkk maður) og því komum við sjálf með vökva sem kætir og bætir en hafa ber í huga að okkur er ekki heimilt að koma með neitt sem Fríhöfnin flokkar sem sterka drykki. Bjór og léttvín er því málið börnin góð.
Matseðill kvöldsins hljómar svo:
Brot af því besta úr fortíðinni í formi nútíma þorramats.
Lambalæri með gratíneruðum kartöflum, bökuðu rótargrænmeti, eplasalat, rauðvínssósa og heimalagað rauðkál.
Svo verður boðið upp á einhvern girnilegan grænmetisrétt fyrir þá sem ekki neyta kjéts en við viljum benda þeim utangarðsmönnum á að taka það fram við miðakaup!
Einnig verður boðið upp á kaffi og eitthvað sætt með því.
Miðasala fer fram dagana 3. og 4. febrúar milli klukkan 11 og 14. Miðaverð er krónur 5000 fyrir þjóðbrókaða en 6000 krónur fyrir óþjóðbrókaða. Miðasalan verður í Odda á 2. hæð, þið finnið okkur. Eins og tíðkast hefur þá eru makar já eða fjölskyldumeðlimir, gæludýr, vinir/vinkonur, átrúnaðargoð, fylgjur, eða allir nema blind stefnumót, (það er bara vandræðalegt) sérlega velkomnir á þessa hátíð okkar.
Skundum nú, öll sem eitt á þessa stórgóðu og ófjölskylduvænu skemmtun!
Þorrablótsnefndin ykkar í ár:
Alda, Auður, Elísa, Hrefna, Margrét og Vala
Discussion Area - Leave a Comment