Dagskrá í staðlotu

Sælir allir þjóðfræðinemar

Nú í þessari viku er staðlota og fáum við þá loksins að líta fjarnemakrúttin okkar augum. Í tilefni af því hefur verið ávkeðin heljarinnar dagskrá sem hefst á miðvikudaginn. Hér kemur hún í öllu sínu veldi.

- Á miðvikudaginn verður farið í safnaferð með Kristínu Einarsdóttur á Sögusafnið í Perlunni. Nemendagjaldið þar eru 1.000.- krónur sem greiðast úr djúpum vösum þjóðfræðinema. Ekki er sérstök skráning á þennan viðburð heldur mætir fólk bara klukkan 15.00 í andyrið á Odda og sameina þar í bíla.

- Á fimmtudaginn ætlar stjórn Þjóðbrókar að taka ykkur í hugarleikfimi og leggja fyrir mannskapinn pub quiz, nema það verður haldið heima hjá Rögnu í Mávahlíð 26 (sjá viðburð á facebook) svo við köllum það home quiz.

- Á föstudaginn ætlum við að hafa sameiginlegan morgunmat með staðnemum, fjarnemum og kennurum, þ.e. allir velkomnir. Hver og einn mætir með eitthvað smáræði. Safnast þegar saman kemur. Það er auðvitað hægt að kaupa sér kaffi og bakkelsi í kaffistofum allt í kring en aðal málið er að hafa þetta bara einfalt. Staðsetningin er Gimli 103, fundarherbergið við hliðina á skrifstofunni hennar Ásu.

- Á laugardaginn næstkomandi ætla síðan þjóðfræðinemar og tæknimenn RÚV að skunda saman í hellaferð undir leiðsögn Kristínar Einarsdóttur Aðjúnkts. Farið verður frá byggingunni Odda í Háskóla Íslands og er mæting þar við innganginn stundvíslega klukkan 15.00. Þangað kemur rúta sem fer með okkur að hellinum.

Nauðsynlegt er að klæða sig vel, hafa hjálm og vasaljós. Boðið verður upp á kakó og “meððí” auk þess sem haldin verður tónlistaveisla í miðjum hellinum (fyrir þá sem þora inn). Kristín hefur lofað draugasögum og öðrum skemmtiatriðum eins og henni er von og vísa. Ég er nokkuð viss um að hún hafi óskað eftir hópsöng í rútunni á leiðinni heim ef ég man rétt, svo hitið vel upp raddböndin fyrir helgina.

Það er mjög mikilvægt að skrá sig og það gerir þú með því að borga ferðakostnaðinn fyrir hádegi á föstudaginn. Gjaldið eru litlar 1.200 krónur og skal sá peningur leggjast inn á reikning:

Reikningsnúmer 0137-26-017956
kennitalan 451089-1619.
Endilega sendið skýringuna “hellaferð” á oli1@hi.is.

Vonandi sjá sér sem flestir fært að mæta. Hlökkum óstjórnlega til að sjá ykkur öll.

Knús og gleði

Þjóðbrók

4 Responses to “Dagskrá í staðlotu”

  1. Morgunmaturinn er klukkan 11.00 á föstudagsmorgun. Allir mæta ;)

  2. Hversu nauðsynlegt er að hafa hjálm í hellaferðinni?

  3. Já og hvenær er búist við að snúa aftur heim að hellaferð lokinni?

  4. Það er nokkuð nauðsynlegt að hafa hjálm þar sem að það er lágt til “lofts” (ef má kalla það loft) og oddhvassar brúnir. Húfa ætti skv. Krisínu ekki að nægja.

    Það er áætlað að við séum á leiðinni í bæinn klukkan 18-19

    Þetta verður GEGGJAÐ stuð krakkar!

Discussion Area - Leave a Comment