Laufskálaréttir og Kvikmyndakvöld

Minnum fólk á að borga staðfestingargjald í Laufskálaréttir. Allar upplýsingar í færslunni hér að neðan. Kooooma svooooo!

Annars verður hér í þessari færslu auglýst Kvikmyndakvöld:

Fyrsta kvikmyndkvöldið verður haldið þriðjudaginn 21. september í stofu 106 í Odda. Mæting klukkan 19:30 og myndin byrjar stundvíslega klukkan 19:45. Því miður getum við ekki boðið upp á popp að þessu sinni þar sem það er stranglega bannað að neyta veitinga inn í þessari stofu (það stendur í reglum og allt).

Sýningarstýra að þessu sinni er engin önnur en Guðrún Helgadóttir (ekki rithöfundurinn) og ætlar hún að kikk-starta þessu með myndinni Good Hair frá árinu 2009. Við látum Guðrúnu alfarið um að segja okkur frá myndinni þannig að sjón er sögu ríkari.

Hlökkum til að sjá ykkur öll

knús <3

Stjórnin

One Response to “Laufskálaréttir og Kvikmyndakvöld”

  1. Svo minnum við á Ögmundarþing sem haldið verður í norræna húsinu laugardaginn 18 sept (á morgun) frá klukkan 13:00 – 17:00.

    Hvetjum alla til að mæta. Stuttir fyrirlestrar og tónlistaratriði í boði. Það er óhætt að segja að allir muni finna sér eitthvað við sitt hæfi á Ögmundarþingi.

Discussion Area - Leave a Comment