Laufskálaréttir

Jæja kæru Þjóðbrækur

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Ferð í Laufskálaréttir, vúbb vúbb!

Laggt verður af stað stundvíslega klukkan 07:00 á laugardagsmorgun þann 25 september. Við stefnum á að vera komin í réttirnar áður en stóðið er rekið inn í réttirnar þar sem það er af sjálfsögðu mjög stór þáttur í upplifuninni. Að réttunum loknum höldum við heim að Hólum þar sem Jón Aðalsteinn tekur á móti okkur og fer með okkur á sögulegar slóðir. Að skoðunarferðum loknum höldum við að Steinsstöðum þar sem við munum jafnframt gista og boðið verður upp á kjötsúpu að gömlum sið.

Þar sem Steinsstaðir eru í töluverðri fjarlægð frá dansiballinu í reiðhöllinni á Sauðárkrók höfum við brugðið á það ráð að halda sérstaka kvöldvöku með öllu tilheyrandi á Steinsstöðum. Ef mikill áhugi er fyrir hendi að skella sér á ball munum við eftir fremsta megni reyna að redda fari fram og tilbaka fyrir þá einstaklinga. En þar sem að aldurstakmark á ballið er 16 ár er það reynsla margra reyndra laufskálaréttamanna að það gæti jafnvel verið meiri stemming fólgin í því að skemmta sér saman í minni hóp. Við vitum það öll að þar sem nokkrar þjóðbrækur koma saman er alltaf gaman!

Fast verð er ekki ennþá komið á hreint, það fer eftir fjölda þátttakanda auk þess sem við erum ennþá að vinna í því að finna ódýrustu rútuferðina. Til þess að hafa einhverja hugmynd um fjölda þá ætlum við að byðja fólk að greiða staðfestingargjald að upphæð 2000 krónur í þessari viku sem er ekki endurgreiðanlegt.

Reikningsnúmerið er:

0137-26-017956

kennitalan 451089-1619.

Þið megið gjarnan setja “laufskálarétt” í skýringu og senda kvittun á oli1@hi.is.

Það vill enginn vera útundan þegar hinir eru að tala um hvað var gaman í þessari ferð svo endilega skráið ykkur sem fyrst! Makar velkomnir með!

knús og kossar.

Stjórnin

One Response to “Laufskálaréttir”

  1. Ég var svona að pæla… varðandi gistipleisið… þurfum við að taka með okkur sæng og rúm og allar græjur, eða?

Discussion Area - Leave a Comment