Aðalfundur og lokahóf
Þjóðbrækur nær og fjær!
Á laugardaginn er lokahóf og aðalfundur eins og öllum ætti nú að vera kunnugt. Búið er að senda póst til allra sem ætla að vera með, en ef einhver hefur sofnað á verðinum og er ekki búin(n) að skrá sig er við hæfi að gera það bara alveg núna strax! Semsagt, ef einhverjar eftirlegukindur eru þarna úti…viljið þið skrá ykkur í kommentakerfið eða senda póst á stjórnina NÚNA.
Eins viljum við byðja ykkur sem eruð í Þjóðbrók að leggja inn 1000.- á reikning félagsins og þeir sem ekki eru í félaginu 2000.- en það er þátttökugjaldið (ef þið gleymið innlögninni er alveg krúsjal að afhenda gjaldkera peninginn er þið sjáið fagra ásjónu hennar (þetta er Vala sko) í hófinu). Ef einhver ætlar bara að koma á aðalfundinn má nálgast upplýsingar hjá strjórnarmeðlimum, endilega sendið póst eða bjallið bara í okkur (þið finnið þær upplýsingar hér á heimasíðunni).
Hér eru bankaupplýsingar: reikningsnúmerið er: 0137-26-017956 og kennitalan: 451089-1619.
Pís end löv.
Ykkar einlæga stjórn.
Discussion Area - Leave a Comment