Aðalfundur og framboð í stjórn Þjóðbrókar
Þjóðbrækur nær og fjær!
Laugardaginn 8. maí verður haldið heljarinnar lokahóf og aðalfundur og munum við auglýsa bæði fundin og hófið betur síðar. En þið þjóðbrækur sem getið hugsað ykkur að að sitja í stjórn næsta skólaárs, megið nú glenna upp glirnurnar. Núna er nefninlega kominn tími á að senda inn framboð!
Framboð í verðandi stjórn fer svona fram: þið sendið ímeil á mas38 (hjá) hi.is (sem er ímeilið hjá Margréti) og takið þar fram nafnið ykkar (augljóslega!) og svo hvaða embætti þið sækist eftir. Embættin eru: formaður (fógeti), ritari (skrifari) og gjaldkeri (féhirðir), nýnemafulltrúi verður svo kosinn í haust. Framboðin þurfa að berast eigi síðar en 1. maí.
Á aðalfundinum verða framboðin kynnt og ef margir sækjast eftir sama embættinu verða kosningar, en þið verðið látin vita ef nauðsyn er að undirbúa framboðsræðu
Verðum í bandi……
Discussion Area - Leave a Comment