Menningarferð í Borgarnes

Halli
Nú hefur ekkert gerst hjá okkur í lengri tíma (enda voru nokkrir hólí deis þarna inn í) og margir orðnir óþreyjufullir að hitta aðra yfir bjór og menningu. Því ætlum við að halda áfram og sjá hvernig landsbyggðarfólk skemmtir sér, nánar tiltekið hvernig Halli og aðrir Borgnesingar skemmta sér.

Við ætlum að keyra í gegnum göng og upp í sveit og vera mætt þangað eigi síður en 4 á föstudag. Við munum byrja á að skoða þær sýningar sem í boði eru og því mikilvægt að mæta á réttum tíma. Eftir það förum við á einhverja af hinum fjölmörgu bensínstöðvum í Borgarnesi og nærum okkur með hefðbundnum “road trip” mat. Móðir hans Halla hefur verið svo elskuleg að bjóða okkur í kokteilboð og því munum arka þangað þar sem við gæðum okkur á guðaveigum (kannski bara Slots).

En Halli mun ekki hætta þar því hann ætlar að taka okkur í göngu um bæinn þar sem hann mun eflaust sýna okkur merka staði og jafnvel fara með gamanmál í leiðinni, já eða kveða vísur. Eftir menningartúrinn ætlum við að sjá annars konar menningu – já drykkjumenningu Borgnesinga eins og lofað var og höfum við heyrt af tveimur stöðum sem skoða má hana á en það eru Dússabar og B52.

Kvöldið endar svo þegar hverjum og einum hentar því við höfum fengið gistingu á farfuglaheimili þar í bæ. Gistingin kostar 2500 í svefnpokaplássi og 3000 í uppábúnu rúmi. Margir ætla þó að fara heim þá um nóttina en það er undir hverjum og einum komið (það er að segja driverum). Endilega takið fram í kommentakerfinu ef þið ætlið að gista svo við getum látið farfuglaheimilið vita fjöldann. Nú er um að gera að hittast öll og heiðra Borgarnes með nærveru okkar og reynum nú að sameinast í bíla til að vernda umhverfi og buddur. Það er sama og ávallt, láta vita í kommentum ef þið komið (nefna ef þið viljið gistingu) og hafa gaman saman.
Hlökkum til að sjá ykkur (og við vitum að Halla hlakkar mikið til!),
ykkar elskandi Stjórn

p.s. muna að raða sér í bíla!

Discussion Area - Leave a Comment