Menningarvika Þjóðbrókar-önnur leiksýning

Kæru þjóðfræðinemar

Nú er komið að annarri leiksýningunni þessa vikuna og hefur verið ákveðið að fara á sýningu Þjóðleikhússins á verki Halldórs Laxness – Gerplu. Um leikstjórn sá Baltasar Kormákur.
Við fáum 20 miða á sýninguna á fimmtudaginn kl. 20 og kostar miðinn 1.500 kr – kostaboð fyrir auralitla námsmenn.

Þjóðleikhúsið hefur þetta að segja um Gerplu:
Með Gerplu, sem kom út árið 1952, réðst Halldór Laxness á sinn hátt í að afhelga hugmyndir okkar um söguöldina og hetjur hennar, en um leið blés hann nýju lífi í samband þjóðarinnar við bókmenntaarfinn. Gerpla er, auk þess að vera sprellfjörug og bráðfyndin, hörð ofbeldis- og stríðsádeila, óvægið uppgjör við hetjudýrkun og mikilmennskuhugmyndir á öllum tímum, og eilífa leit mannsins að einum allsherjarsannleik.

Afskaplega áhugavert fyrir okkur þjóðfræðinemana :)

þið skráið ykkur í kommentakerfið á thjodbrok.net en svo sækið þið bara miðana sjálf og segið – hæhæ ég er þjóðfræðinemi og á frátekinn miða hérna ;)

Eftir leikhúsið er svo ekki ólíklegt að við töltum yfir götuna og fáum okkur eitt hámenningarlegt rauðvínsglas á kúltura eða eitthvað í þá áttina…

Vona að við sjáum sem flesta – þó ekki fleiri en 20 !!! fyrstir koma fyrstir fá…

…og sem fyrr byð ég ykkur um að skrá ykkur í kommentakerfið og taka fram hversu marga miða þið viljið.
Skemmtum okkur ógeðslega vel!!!

15 Responses to “Menningarvika Þjóðbrókar-önnur leiksýning”

  1. ég mæti með 3 föngulegar meyjar=4 miðar takk!

  2. einn fyrir mig

  3. ég vil fá einn miða takk!!

  4. Ég vil fá 2 miða, takk, takk.

  5. einn fyrir mig

  6. Einn fyrir mig.

  7. og svo eru það ég og Ólöf !!

  8. Einn miða fyrir minns

  9. og einn fyrir mig takk!

  10. Nú erum við þá 17 því það eru 3 á facebook sem kommentuðu ekki hér ef mér telst rétt til… 3 miðar eftir !!!!

  11. einn takk

  12. ég vil miða :D

  13. þá eru komnir 20 !!! … þegar facebook er talið með…

    Muna bara – miðar fyrir lokun á morgun… ! Opið til kl. 18

  14. Ef einhver dettur út þá er ég til í einn í viðbót.

  15. já ef einhver hellist úr lestinni vil ég endilega fá miða,
    takk takk.
    Kv. Anna 695 1303 ath97@hi.is

Discussion Area - Leave a Comment