Menningarvika Þjóðbrókar
Við höfum tekið þá ákvörðun að vera afar menningarleg í komandi viku og ætlum við að byrja á því að sjá Kvennó Eddu. Það er leikfélagið Fúría í Kvennaskólanum sem sýnir þetta verk eftir Árna Kristjánsson en það er í leikstjórn hans sjálfs sem og Bryndísar Óskar Þ. Ingvarsdóttur.
Kvennó Edda er verk um örlög og átök í norrænni goðafræði. Örlaganornirnar Urður, Verðandi og Skuld kenna óreyndum völvum að magna seið, spá og galdra. Málin snúast í höndunum á þeim þegar ein af ungu völvunum slysast til að segja Óðni að Baldur verði drepinn og ragnarök vofi yfir. Þegar mest á reynir koma í ljós brestir í samstöðu Urðar, Verðandi og Skuldar.
Kvennó Edda er tilfinningarík og sprenghlægileg sýning sem tekst á við norræna goðafræði með söng, dansi og dauðsföllum. Inn í söguna fléttast sögur af ásum, einherjum, dvergum og dýrum.
Verkið er sýnt í Uppsölum Kvennaskólans í Þingholtstræti 37 og hefst sýningin sem við eigum 15 miða á kl 20:00 þann 23.mars.
Viljum við sérstaklega vekja athygli þeirra sem eru í norrænni trú og munnlegri hefð á þessari sýningu! Viljið þið vera svo væn að kommenta í kommentakerfið og segja um leið hvað þið viljið marga miða. Þið megið svo sækja þá í Kvennaskólann fyrir sýningu.
Góða skemmtun
ég vil gjarnan fá einn miða takk
Einn miða takk!