Vísindaferð í Vodafone

Góðan dag krúttlegu Þjóðbrækur og takk fyrir síðast…

Á föstudaginn (26/2) er stefnan tekin á Vodafone í Skútuvogi 2. Þar verður tekið á móti okkur með tónlist, guðaveigum og ýmis konar fjöri sem erfitt verður að standast.. Við verðum ekki ein í partýinu því 4 önnur nemendafélög hafa einnig verið boðuð og mun gleðin standa yfir frá klukkan 18:00-20:00. Síðan munum við fjölmenna til Hjördísar í partý (í Mávahlíðina) í tilefni af því að vika verður liðin frá þorrablóti. Þar verða svo rifjuð upp ýmiss vandræðaleg atvik…

Við þurfum að staðfesta fjölda á miðvikudaginn en við höfum pláss fyrir 25 manns. Því bið ég ykkur um að skrá ykkur hér í kommentakerfið eða staðfesta ykkur inn á Facebook viðburðinn sem allra fyrst eða í síðasta lagi á miðvikudag!

Megi gleðin ávalt ríkja í hjörtum vorum.

3 Responses to “Vísindaferð í Vodafone”

  1. vísó smísó sko… MÆTI!

  2. Mæti! :)

  3. Þar verð ég.

Discussion Area - Leave a Comment