Þorrablót Þjóðbrókar 2010!!!

Jæja þá er komið að því!! 60 manns búnir að kaupa miða og allt að verða vitlaust úr stuði.. það er enn hægt að kaupa miða í dag og hægt er að greiða miðann með því að leggja inn á reikning 0137-26-017956, kennitala 451089-1619 og senda kvittun á thjodbrok@hi.is.

Miðinn kostar 4500 kr. fyrir meðlimi Þjóðbrókar og 5500 kr. fyrir aðra.

Nokkrar hagnýtar upplýsingar:

- Þorrablótið er í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8.
- Húsið opnar klukkan 19:00 og verður fordrykkur í boði Þjóðbrókar. Maturinn byrjar síðan kl. 20:00. Það væri hrikalega gaman ef þið mynduð mæta tímanlega :)
- Það er enginn bar á staðnum þannig að þið komið með ykkar eigin drykkjarvörur ( og nóg af þeim ;) )

Við hlökkum alveg hrikalega mikið til og við vonum að þið gerið það líka. Ef það eru einhverjar spurningar getið þið hringt í Aldísi i síma 6994463 eða í Nönnu í síma 8464975.

kær partýkveðja,
Þorrablótsnefnd

p.s. á föstudag eftir rúma viku er svo vísó í Vodafone, nánar auglýst síðar.

Discussion Area - Leave a Comment