Slútt á leynivinaleik (:

Unaðslegu leynivinir og aðrir þjóðfræðinemar.

 Nú er komið að því að við ætlum að slútta hinum æsispennandi og töfrandi leynivinaleik. Á fimmtudaginn komandi, nánar tiltekið klukkan hálf 9 um kveldið, ætlum við að halda gleðisamkomu mikla og fagna því að við eigum góða vini og dásamlega samnemendur. Leynivinir af öllum stærðum og gerðum eru sérstaklega hvattir til að koma en við tökum annars öllum þjóðfræðinemum fagnandi… Hugmyndin er að allir leynivinir hafi í fórum sínum dulítinn glaðning handa sínum vini og svo verður auðvitað uppljóstrað hver vinurinn er. Þeir leynivinir sem sjá sér ekki fært að mæta eru beðnir um að snúa sér til Rögnu (sem sendi út leynivinapóstinn til allra) og koma einhverjum skemmtilegum skilaboðum til hennar sem eiga svo að fara til vinanna…. Staðsetningin er Prikið, efri hæð og innri salur. Þá fáum við risabjór (1,2 L.) á þúsund kjell. Þetta er síðasti sjéns á að hafa það kósí með bjór í annari og leynivin í hinni áður en að við slettum ærlega úr klaufunum á þorrablóti Þjóðbrókar!

Vil ég biðja ykkur um að setja nafnið ykkar í kommentakerfið eða á Feisbúkk íventið sem mun líta dagsins ljós von bráðar…

Leynivinur

7 Responses to “Slútt á leynivinaleik (:”

  1. mæti klárlega og hlakka óóógeðslega mikið til!

  2. Kem! :)

  3. Mæti!

  4. Mæti að öllum líkindum.

  5. Mæti :)

  6. Ég kem….

    … vona að leinivinur minn lemji mig ekki fyrir að vera ömurlegur vinur :/

  7. ég koma

Discussion Area - Leave a Comment