UNIFEM og samverustund með Kynveru

Þjóðbrók og Kynvera, félag kynjafræðinema við Háskóla Íslands, ætla að sameinast á föstudaginn, 5. febrúar. Við ætlum að byrja á því að fara í vísindaferð í góðgerðafélagið UNIFEM (United Nations Development Fund for Women) sem er Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna. UNIFEM er á Laugavegi 42, 101 Reykjavík. Fyrirlesturinn byrjar kl. 17:00 og verður í rúma tvo tíma. Ef þið viljið lesa ykkur til þá er heimasíðan hjá UNIFEM á Íslandi: http://www.unifem.is/
Planið er svo að finna teiti um kl 20:00 og ef einhver er til í að bjóða, værum við afar þakklát.

Muna að kommenta svo við vitum hvursu mikinn mjöð á að fjárfesta í (:

p.s. planið var að fara í vísó í Vodafone eins og þið vissuð en það þurfti að breyta þeirri dagsetningu og förum við þangað 26.feb. Þá verður leynivinaleiknum slúttað í næstu viku þann 11.feb. og Þorrablótið góða er þann 19.feb. Ef að við höfum ekki vakið nógu mikla athygli á því að þá má enginn missa af Þorrablóti Þjóðbrókar!!!!

5 Responses to “UNIFEM og samverustund með Kynveru”

  1. Ég er að vinna en ég hafði hugsað mér að mæta í party – það er að segja ef einhver fæst til að halda það :)

  2. langar í UNIFEM, litla syss fór í fyrra og sagði að það hafi verið ógó gaman :O)

  3. Óóóókey! PARTÝ hjá mér dúllurnar mínar!

    Barónsstígur 59, 101 rvk. Efsta bjallan (það stendur Þórólfur og Hrönn á henni). Fólki gefst tími til að fara heim í sturtu og dubba sig upp frá 19 – 20.00 og þá byrjum við partýið.

    Koma svo þjóðbrækur, gerum okkur glaðan dag ;)

    Fólk er búið að staðfesta sig á facebook. Förum bara eftir því! Legg allavega til að féhirðirinn versli eins mikið og buddan leyfir ;)


  4. Ég er rosalega gleymin á að kommenta á svona en betra er seint en aldrei….ég ætla að mæta í partý :)

    kveðja,Ólöf Dröfn

  5. [...] [...]

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra