PartyQuiz og leynivinaleikur
Elskulegu þjóðfræðibörn
Á fimmtudagskvöldið (28.jan.) klukkan 20:30 er ykkur boðið í partý heim til Rögnu í PartyQuiz. Þetta er sem sagt heimatilbúið afbrigði af PubQuiz eins og þið eruð vafalaust búin að fatta… Enda öll afskaplega vel gefin og fáið einmitt að láta ljós ykkar skína þetta kvöld. Ragna býr á Grettisgötu 68 á efstu hæð og stendur Hulda á bjöllunni. Bjór verður í boði Þjóðbrókar en við viljum benda ykkur á, sem að sjáið fram á að vera ákaflega þyrst, að koma með dulítið nesti með ykkur…..
Svo verður líka settur í gang vinaleikur (svona leynivina sko..). Kíkið inn á http://www.facebook.com/event.php?eid=302936061132 og skoðið allt um hann
Endilega skráið ykkur þar eða sendið Björk línu (bth43@hi.is). Þetta verður auðvitað rosa gaman og er þetta bara spurning um að láta hugmyndaflugið og hjartað ráða ferðinni. Sýna kærleika í skammdeginu og umhyggju fyrir öðrum snoppufríðum og vönduðum þjóðfræðinemum. Leikurinn mun standa yfir í 2 vikur og endar auðvitað með gleðskap við hæfi sem mun verða auglýstur síðar.
Ekki gleyma að skrá ykkur í kommentakerfið góða…
Ást, kærleikur og eilíf vinátta, hin vinalega stjórn Þjóðbrókar.
p.s. á föstudag í næstu viku ætlum við í vísó í Vodafone-spara sig þangað til!
JEI!! hver missir af þessu?!? Pant eignast uppáhalds vin og allt…!
Ég ætla að vera ofvirki nýneminn og mæta í þetta allt saman!
Ohhh svo konfjúsing að skrá sig á alla staði í heimi til að vera með í þessum leik. En ég kemst ekki á fimmtudaginn til að fá úthlutaðan vin – má ég samt vera með?
Ég mæti örugglega.
Guðrún þú verður þá bara að senda mér póst um það að þú komist ekki, þú getur líka kommentað á facebookeventinn eða skáð þig sem slík í hópinn okkar. Ef þú ákveður að setja þetta í status þá verður ekki tekið mark á því þar sem þetta gildir eingöngu ef þú skrifar þetta sem skilaboð eða komment!
Grín. Auðvitað máttu vera með
Sjálf missi ég líka af fimmtudagskvöldinu en kem sterk inn í vinaleiknum. Ég verð sko besti vinur sem hægt er að hugsa sér!
ég er góður vinur og kem á fimmtudaginn
ég kíki á ykkur á fimmtudaginn
Ég mæti á fimmtudaginn. Þarf klárlega að halda upp pub quiz heiðri mínum.