Litlu Jól

Þá er síðustu skólaviku þessarar annar að ljúka og jólaprófin framundan. Við Þjóðbrækur ætlum að vera heldur spakar fram að jólum og slaka á í skemmtannahaldi og einbeita okkur að prófalestri….

EN, að sjálfsögðu munum við enda þessa önn með stæl og hafa það kósí saman því fimmtudaginn 17.des. verða haldin litlu jól þjóðfræðinema. Staðurinn er Mávahlíð 26 upp á efstu hæð (heima hjá Hjördísi) og mætingin er klukkan 19:00. Huggulegheitin verða í fyrirrúmi með kertaljós, jólalög, jólaglögg og piparkökur. Þeir sem vilja föndra engla úr glanspappír og gera músastiga er bent á að taka efnið með sér…

Til þess að hafa þetta alvöru munum við skiptast á gjöfum. Allir kaupa gjöf á verðbilinu 500.- til 1000.-, pakka henni inn og svo verðum þeim útdeilt með miklum kærleika. Stefnan verður svo tekin á Íslenska barinn þegar líður á kvöldið. Fólki er bent á að taka með sér ef það vill væta í sér fyrir þann íslenska.

Gleðjumst öll saman svona rétt fyrir hátíð ljóss og friðar og losum okkur við prófhryllinginn með glögg og piparkökum. Ferlið er líkt og áður, kommentið í kommentakerfið kæru börn og munið eftir fallegum pakka handa samnemanda.

Jólakveðja,

Stjórnin

23 Responses to “Litlu Jól”

  1. Ég mæti – auðvitað :D

  2. I´ll be there!!!

  3. Og ég:D Jafnvel ber að neðan til tjá gleði mína yfir próflokum…

  4. það hryggir mig að segja ykkur að ég kem ekki…fer í próf 18… :(

  5. Ég mæti, mögulega ber að ofan til að vera í stíl við Önnu :P

  6. Ég ferð farin heim á austurlandið fagra. En góða skemmtun þið hin

  7. ég mæti, til að fagna prófslokum :)

  8. Ég mæti – verð í fötum :)

  9. Ég mæti – í fötum og með pakka :-)

  10. Ég mun reka nefið í gættina til að segja gleðileg jól en verð annars að ganga hægt um gleðinnar dyr þar sem ég á að skila ritgerð daginn eftir…

  11. Ég mæti – með flottasta pakkann.. og kannski bara glögg til tilbreytingar!

  12. já jú jú ég mæti … gef engin loforð í sambandi við klæðnað !

  13. ég kem :D kát og glöð

  14. ég mæti að sjálfsögðu.

  15. ég er að vinna til kl.10 en ég kíki nú á ykkur á þeim íslenska eða hvar sem þið verðið þá.. :)

  16. Mér fannst ég ekki þurfa að tilkynna komu mína en það er sjálfsagt betra svo Hjördís geti tekið frá stól og pláss í ískápnum…

  17. Ég mæti:)

  18. ég kem ekki vegna anna á fengitíma í fjárhúsunum. en mun sötra glögg, bryðja piparkökur og föndra við kertaljós og hugsa til ykkar…á fæðingargallanum!

  19. Ég mæti – sjáumst jólabörnin góð :-)

  20. Ég kem! :)

  21. Elskurnar mínar, mér þykir leitt að þurfa að hryggja ykkur með því að boða forföll en… Þar sem ég er búin að vaka í tvær nætur í röð og á að skila verkefni um miðnætti á morgun neyðist ég til að vera skynsöm og fara snemma að sofa. MJÖG snemma. Skemmtið ykkur samt vel, gangið hægt um gleðinnar dyr og Gleðileg jól!!!

  22. I’ll be there

  23. I’ll be there!!!

Discussion Area - Leave a Comment