GRÓTTUFERÐ!!!

Þá er komið að því! Þjóðbrók í Gróttu föstudaginn 13. nóvember… JAAAAAHÚÚÚÚÚ!!!!!!

Nú eru að verða síðustu forvöð að skemmta sér saman áður en önnin er úti. Næstkomandi föstudagskvöld munum við fara í svaðilför út í Gróttu. Mæting er klukkan 21:30 á bílastæðið út á Nesi þar sem hægt er að ganga út í eyna. Mun Kristín stjórna halarófunni út í Gróttu en þess má geta að hún er einmitt atvinnumaður í æfintýra-og svaðilförum. Við þurfum að vera vel skóuð, vel klædd og með vasaljós! Ekki heldur gleyma svefnpokum, koddum, tannbursta og náttfötum. Gott er að hafa meðferðis eitthvað til að svala þorsta og svo ætlum við öll að skella einhverjum léttum veitingum á hlaðborð (t.d. snakk, ostar og vínber, brauð og pestó, kaka, múffur, harðfiskur, sláturkeppur…. bara neim itt!). Upp hefur komið sú hugmynd að við höfum sameiginlegt bröns um morguninn og er kostnaðurinn af því innifalinn í verðinu. Þjóðbrækur borga 1000 kr. og óþjóðbrókaðir þjóðfræðinemar borga 1.500 kr. (Vinsamlegast komið með pening með ykkur). Við munum fara í leiki af ýmsu tagi, fara á trúnó, skoða okkur um, leika á alls oddi og fl. Reynslan hefur sýnt að þetta er ógeðslega skemmtilegur viðburður og algerlega ómissandi! Háfjara á laugardeginum er klukkan 10:30 (hægt að fara svolítið fyrr ef einhverjir þurfa að drífa sig heim).

Aðeins komast 30 manns í þessa ferð og því er MJÖG mikilvægt að skrá sig sem allra, allra fyrst í kommentakerfið á síðunni!

Ekki gleyma: vasaljósum, góðum skóm, svefnpoka, pening, bjór/vín/gos/mjólk og eitthvað til að setja á næturhlaðborðið.

Albert

41 Responses to “GRÓTTUFERÐ!!!”

  1. Pant koma með!!!!!

  2. Ég ætla að koma með – verð reyndar að hanga á bakinu á einhverjum því ég á ekkert vasaljós og ekki góða skó

  3. Ég er líka með – ég mun verða hangandi á bakinu á Völu í sömu vandræðum… bara svo sjálfboðaliðinn hennar viti af því …

    plús – á einhver auka svefnpoka..? fer að hljóma eins og maður sé ekki vanur Gróttufari… nema maður sleppi því bara að leggja sig !!!

  4. Ég er sko memm! Og ég á auka svefnpoka… En illa skóaðir … geta bara farið úr skóm og sokkum og vaðið yfir!

  5. kéllinn mætir með lyklakippuvasaljós, sweet.

  6. Ég kem

  7. Mætiiii=)

  8. MÆTI!

  9. Mæti!

  10. Mæti klárlega :)

  11. ég mæti klárlega!

  12. Ég kem með! :)

  13. mæti pottþétt.

  14. Ég mæti. Veit ekki hvort ég get játað þetta sem skáti en ég á ekki vasaljós (það lést í fyrra en algjörlega kominn tími til að fjárfesta í nýju). Ég verð hinsvegar vel skóuð og get haldið á Völu með hægri og Rögnu með vinstri :P

  15. er að spá í að skrá Kristínu kennara, ekki víst hún hafi fengið fjölpóstinn..

  16. Æji ég þarf að fara vinna á laugard.morgun fyrir fjöru:I Náttla mega svekk að vera á þriðja ári og hafa aldrei komist í Gróttu!!

  17. ég mæti, og get hjálpað nönnu að bera völu og rögnu, enda með vígalegar byssur!

  18. Ég mæti, maður getur varla misst af þessu :)

  19. Maður missir nú ekki þessu ! :-)

  20. Ég kem með

  21. Mæti

  22. hjúkkett að það eru ekki öll 30 plássinn uppurin því ég ætla takk fyrir að koma með

  23. Ég kem líka og er voðalega spennt!

  24. Mæti !!

  25. Ég kem með!!!!!!! jíhhhhhaaaaaa

  26. Ég kem og meina það!

  27. Ég kem :D Þetta hljómar allsvakalega…

  28. ég mæti!

  29. Ég vil endilega vera með :)

  30. Kem

  31. Möguleiki á að setja fólk á biðlista ef það verða einhverjir sem detta út! Annars eru tvö pláss núna laus.

    Ef það er einhver sem forfallast, endilega láta vita svo við getum boðið fyrsta af biðlista að koma. Við ætlum að fylla þessi 30 pláss! ;)

  32. Sko mig langar að koma með en fara til baka áður en það kemur flóð kl ca hálf 1…má það? Mig langar svo að vera memm en get ekki verið yfir nóttina.

  33. Já það hlítur að sleppa Andrea, spurning um að vera bara rosa vel skóuð og með vasaljós svo að þú komist ein til baka í myrkrinu…Albert getur líka fylgt þér í land..
    1 pláss eftir börnin góð!!!

  34. Hvar skráir maður sig? er kannski uppbókað?

  35. Frá og með Gretti er orðið uppbókað! Spurning hvort einhverjir vilja bæta sér á listann ef forföll verða??

  36. Vill gjarnan komast á þennan forfallalista ef það er hægt:)

  37. Þú ert þá fyrst á lista og endilega láta vita ef þið komist ekki þið sem eruð skráð svo aðrir komist að :)

  38. Nanna Imsland var að boða forföll… Sigurlaug… þú ert þá inn !

  39. Gott fólk, það var ein að detta út, þannig að það kemst einhver ein/einn í viðbót með í kvöld :) Skella sér bara á listann!

  40. 2 laus pláss núna… og koma svo…!

  41. [...] [...]

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra