Partý og tónleikar
Maður er manns gaman og Þjóðbókum finnst voðalega gaman að skemmta sér saman. Nú ætlum við að reyna að halda fjörinu áfram, viðburðirnir eru vissulega mis-stórir, og næsta föstudagskvöld ætlum við að vera með óformlegan og notalegan hitting. Þar sem stór ferð er framundan, Gróttuferðin 13.nóvember, þá ætlum við að halda smá partý núna í þessari viku. Við ætlum að hittast heima hjá henni Hjördísi sem hefur verið svo dugleg að halda partý – og stunda partý – og svo ætlum við að skunda saman á tónleika
Tónleikarnir sem verða fyrir valinu – eru heldur í þjóðfræðilegri kantinum, að sjálfsögðu. Nú hlustum við á íslensk, húmorísk og þjóðsagnaskotinn kveðskap hjá hljómsveitunum Ljótu Hálfvitunum og Hvanndalsbræðrum. Skemmtanahaldið mun fara fram í félagsheimili Reykjavíkur – NASA - og hefst kl. 21:30. Eðli málsins samkvæmt ætlum við að hittast eitthvað fyrr heima hjá Hjördísi, til dæmis um 18:34 ! Margt er hægt að taka sér fyrir hendur við þær aðstæður sem svona partý býður upp á, okkur hefur til dæmis dottið í hug að hringja eftir flatbökum, enda gæti hungrið farið að sverfa að á þessum tíma dags. Drekka, borða og hafa gaman saman – svo við komum aftur að upphafi þessa pistils. Þó okkur finnist innilega gaman að hitta ykkur, og Þjóðbrækur eru fremstar meðal jafningja í skemmtanaiðkun, þá ætlum við ekki að þessu sinni að bjóða upp á söngvatnið góða… hver mun koma með það sem hverjum og einum hentar í þeim efnum (þó sem mest svo allt fari örugglega sem mest úr böndunum – til að gera Hjördísi til geðs). Þeir sem vilja fara á tónleikana, ættu endilega að vera búnir að huga að miðakaupum, við viljum ekki vera of stressuð að koma okkur á staðinn, og eiga á hættu miðaleysi (það kemur fyrir þegar þessar stórsveitir spila) – og því bendum við á forsölu miða á midi.is !
Við vonumst til að sjá sem flesta – þeim mun fleiri, þeim mun skemmtilegra -
sem fyrr – almenn skráning – á fullt af stöðum
á thjodbrok.net og svo getið þið líka látið okkur vita í facebook tilkynningunni – en heimasíðan er aðalskráningin !
Knúúúúúúss
*
Minns mætir að sjálfsögðu með miða og alles..
Fyrst þinns mætir – mætir minns líka –
úgga búgga
Ég auðvitað líka og þar sem ég er nú gestgjafi vil ég minna á heimilsfangið – Mávahlíð 26 (ris – efsta bjalla).
Sjáumst hress
Minns reynir að mæta í teitið.. annars hitti ég ykkur á tónleikum þar sem ég verð hirðljósmyndari hálvitanna..
gamli mætir í partyið, nenni samt engan veginn á þessa tónleika, ég segi celtic eða íslenski, hver er með mér!
Þar sem ég var fjarri góðu gamni um síðustu helgi ætla ég sko þokkalega að mæta í partí og hálfvitarnir eru alltaf mínir uppáhalds
) og hvannadalsbræður ekkert síðri. Kem semt með seinni skipunum, uppúr hálfátta, þarf að losa mig við soldið af börnum fyrst…
Það er ekkert skylda að fara á þessa tónleika, ég er ekki viss um að ég fari sjálf, svo það er velkomið að halda teitinu áfram fyrir þá sem vilja
Ég mæti til Hjördísar. Ætla ekki á tónleikana. Geim í að halda partíinu áfram, geim í celtic, geim á íslenska.
ég hugsa að ég mæti í partíið, ætla ekki á tónleikana samt, þannig að ég sé til með framhaldið
Góða skemmtun í kvöld Þjóðbrókarvillingar
Ég segi pass í þetta skiptið.
Ég mæti í partíið