Vísindaferð í Samtökin ´78 og Hrekkjavökuteiti á Kaffi Kultura

Kannast þú við fyrirbærið hrekkjavöku? Þjóðfræðinemar þekkja siði og venjur betur en margur leikmaðurinn (segir Vala), því er vel við hæfi að við heiðrum siði erlendra þjóða, nú fáum við kjörið tækifæri til þess upp í hendurnar. Um helgina mun Hrekkjavaka verða haldin hátíðleg og ætlum við að taka þátt í þeim hátíðarhöldum eins og okkur einum er lagið.

Á föstudaginn (30.okt.) byrjum við á því að heimsækja Samtökin ´78 sem eru til húsa að Laugarvegi 3 á 4.hæð. Við ætlum að mæta þar stundvíslega klukkan 18:00. Að kynningu og fróðlegum umræðum loknum förum við í hrekkjavökuteiti á Kaffi Kúltúra (beint á móti Þjóðleikhúsinu) og opnar húsið klukkan 20:00. Fjögur nemendafélög hafa tekið höndun saman og skipulagt þetta hóf. Það eru Þjóðbrók, Kuml. Fróði og F.L.O.G. Keyptir hafa verið kútar og því mikilvægt að mæta með félagsskýrteini sín til og að mæta stundvíslega til að geta svalað þorsta sínum.

Þar sem þetta er hrekkjavökugleðskapur og hefur sá siður verið viðhafður hjá erlendum þjóðum að klæða sig upp í tilefni dagsins, ætlum við að gera slíkt hið sama. Verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn.

Mætum öll: í vísó í Samtökin ´78, í hrekkjavökuparty og í ógnvekjandi búningum! Muna að skrá þátttöku í kommentakerfið..

p.s. Björk ætlar að mæta sem Zombie Play Boy kanína, Vala sem Zombie sexy hjúkka, Margrét sem Zombie sexy klappstýra og Ragna sem tilberi….

18 Responses to “Vísindaferð í Samtökin ´78 og Hrekkjavökuteiti á Kaffi Kultura”

  1. Zombie sexy klappstýran mætir!

  2. Tilvonandi Tilberinn líka…

  3. ég mæti auðvitað :) þetta verður ofurgaman!

  4. Ég mæti, ég ætla að vera ég sjálf :D

  5. ég mæti :) Búningur er óráðinn.. :)

  6. kem líka

  7. ég get ekki ákveðið hvort ég á að mæta sem sr. gunnar björnsson eða gunnar í krossinum, en ég ætla allavega að reyna að mæta.

  8. Ég ætla að mæta sem hermafródíti.

    Og Óli, ég held þú sért líkari sr. Gunnari Björnssyni. Ég get reddað þér hempu.

  9. líkARI nota bene… ekki líkur! það er vonandi alveg á hreinu.

  10. mæti

  11. Þetta verður frábært, ég mæti í einhverju slutty/zombie …. ;-)

  12. Ég kemst kannski, vonandi. Þá í einhverjum Jack Sparrow sjóræningja fíling…

  13. Ég ætla að reyna að mæta :)

  14. hey hó!

    mæti með dólg og í mega slutty dörtý búning!

  15. Mæti í e-u…

  16. Ég ætla að koma:)

  17. ég kem… og verð á einhvern hátt kindarleg!

  18. Mæti;)

Discussion Area - Leave a Comment