Pub Quiz og teiti á föstudaginn (c:

Á föstudaginn (16.okt.) ætla þjóðfræðinemar að láta ljós sitt skína og halda Pub Quiz. Ragna býður okkur fyrst  í teiti en hún býr á Grettisgötu 68, 3ju hæð (stendur Hulda á bjöllunni). Ætlum við að mæta til hennar klukkan 20:00 og skunda svo á Celtic Cross klukkan 22:00. Búið verður að taka frá fyrir okkur bakherbergið (sem að við vorum í, á nýnemakvöldinu) en þar mun fara fram æsispennandi spurningakeppni! Þjóðbrækur eru með tilboð á barnum til miðnættis og erum við minnt á að taka með félagsskírteini og skilríki.

Einhverjir hafa sjálfsagt frétt af því að við ætluðum í vísindaferð í Þjóðmenningarhús en henni þurfti að fresta fram yfir áramót. En við látum ekki deigan síga svona rétt fyrir verkefnaviku okkar þjóðfræðinema og skellum okkur því bara á Pub Quiz.

Ekki gleyma að skrá ykkur í kommentakerfið svo að við vitum hvað Ragna þarf að fá lánaða marga stóla…

11 Responses to “Pub Quiz og teiti á föstudaginn (c:”

  1. ég verð heima… og mæti svo á barinn…. en ekki hvað!?!?

  2. gleðskapur og Pub Quiz, JÁ TAKK!

  3. Ég mæti að sjálfsögðu enda mikil áhugamanneskja um spurningakeppnir…og bjór

  4. ég mæti að sjálfsögðu :)

  5. Ég mæti :-)

  6. nammi namm – ég mæti!

  7. Ég held ég mæti ekki í partý en ég kem kannski á barinn í pubquiz :)

  8. Ég ætla að leggja mig allan fram við að mæta.

  9. Ég ætla mæta í kvöld…….sorrý að ég var ekki búin að skrifa fyrr, ég var bara búin að gleyma að ég þyrfti að skrá mig á þetta

    kveðja,
    Ólöf Dröfn

  10. Maður þarf að skrá sig á svo mörgum stöðum eitthvað en ég ætla að mæta í bæði.

  11. ég mæti í pubquiz.

Discussion Area - Leave a Comment