Fundur með kennurum, partý og Októberfest/Rockfest !

Yndisfríðu þjóðfræðinemar nær og fjær

Á fimmtudaginn (8.okt.) er öllum þjóðfræðinemum boðið á fund með kennurum vorum. Fjarnemar mæta klukkan 3 og aðrir þjóðfræðinemar klukkan 4 í stofu 102 í Gimli. MJÖG vel hefur verið mætt á þessa fundi og ég ætla að biðja ykkur um að láta þennan ekki fram hjá ykkur fara! Aðal umræðuefnið að þessu sinni er “Hvað gera þjóðfræðingar?”. Þetta er örugglega spurning sem að öll okkar kannast við og höfum líklega sjálf velt fyrir okkur. Ég geri því ráð fyrir fjörugum umræðum (:

Eins og okkar er siður ætlum við að kippa með okkur einhverju góðgæti til að bjóða upp á að fundi loknum en þetta er ekki saumaklúbbur þannig að þið þurfið ekki að svitna yfir bakstri eða neinu slíku,  það má þó alveg….. Þá munum við mynda eina halarófu og fara á kennarakaffistofuna inn af skrifstofum Terry og Valdimars þar sem við munum gæða okkur á gúmmulaðinu. Kaffi og gos verður á staðnum.

Um kvöldið ætlar Björk ofurnýnemafulltrúi að bjóða okkur í partý  (c: Eftir að hafa partýast um stund verður stefnan tekin á Rockfest en ef það hefur farið fram hjá ykkur að þá byrjar Októberfest sama dag (www.oktober.is ). Heimilisfang og fleira verður auglýst betur á fimmtudaginn.

Hlökkum óstjórnlega mikið til að sjá ykkur og fræðast og skemmta okkur með ykkur….!!!

One Response to “Fundur með kennurum, partý og Októberfest/Rockfest !”

  1. Björk býr á Barónstíg 59 og ætlar að taka á móti okkur þegar fundurinn er búinn eða milli hálf 6 og 6. Boðið verður upp á bjór fyrir Þjóðbrækur en þeir sem að ætla að djamma ærlega er bent á að taka með sér nesti…
    Sjáumst!

Discussion Area - Leave a Comment