PARTÝ og fleiri tilkynningar
Unaðslegu Þjóðbrækur
Tak for sidst ;-*
Með gleði í hjarta vil ég segja ykkur frá því að næstkomandi föstudag mun Hjördís (3ja árs pía) efna til teitis. Hún býr í Hlíðunum og mun heimilisfang verða birt fyrir föstudaginn. Hún væntir þess að við munum skunda til hennar í góðum fíling klukkan níu með guðaveigar undir annari og gerða- og minnaskrá Antti Aarne undi hinni. Allar glaðar og hýrar Þjóðbrækur eru velkomnar.
Þá er fyrirhugað að fara í vísindaferð á Landnámssýninguna 871+-2 föstudaginn 25.september og er mæting kl 18:00. Gjálífið mun nú ekki enda þarna því okkur er boðið að drekka öl og háma í okkur pizzu hjá Loga í beinni föstudaginn 2. október. Í vikunni þar á eftir eru fjarnemar in town og vill svo skemmtilega til að þá er líka Oktoberfest. Að sjálfsögðu munum við fara þangað í skipulögðum hópum og skandalisera. Þá er þetta komið nóg af tilkynnignum í bili og mun þetta allt verða auglýst síðar.
Aðeins eitt enn….. ég vil minna ykkur á sem að ennþá eruð óþjóðbrókuð og viljið ganga í Þjóðbrók að þá má enn leggja inn á reikning félagsins. Þið finnið allt um það í færslunni hér að neðan en félagsskírteinin fara í prenntun á næstu dögum.
Guð blessi Ísland.
læt mig ekki vanta í þjóðfræðipartý!!!
Töff! partý partý partý! Ánægð með Hjördísi heiðurs þjóðbrók!
Ég mæti og ég mæli með að allar aðrar stoltar þjóðbrækur geri slíkt hið sama!
Líst ekkert smá vel á þessa dagskrá!! Eitt stórt klapp fyrir stjórninni! – *Klapp*
Ég því miður kemst ekki fyrr en um tíu-leitið þar sem ég er byrjuð í dansskóla og er þar alla föstudaga á milli hálf 6 og 9. Frekar súrt þar sem það lítur út fyrir að ég missi af öllum vísindaferðum! :’(
víííí partýýý… Hjördís er best… og við fjölmennum og höldum mega gleði
ég gæti heiðrað ykkur með nærveru minni….bara svona til að sjá bæði Rögnu og Hjördísi fullar;) hehe…það er skemmtun út af fyrir sig!
Líst mjög vel á plön um áframhaldandi gjálífi ! Kemst samt því miður ekki á föstudaginn en mun mæta hress í fyrstu vísindaferðina
það er bara full vinna að vera í 2 nemendafélögum… ég er að fara í vísó held ég með hinum, en aldrei að vita nema ég kíki á ykkur eftir hana