Ratleikur í kvöld og félagsgjöld í Þjóðbrók

Nú er allt að gerast… Við ætlum semsagt að hittast í kvöld klukkan átta (þeir sem vilja mæta svolítið fyrr til að væta kverkarnar er það auðvitað velkomið, verðum mættar um hálf 8) á Íslenska barnum í Pósthússtræti 9. Fljólega upp úr átta verður svo haldið af stað í ratleik um miðbæinn sem mun taka ca klukkutíma. Nauðsynlegur búnaður er digital myndavél/sími með myndavél, skrifblokk og skriffæri, vasaljós og eilíf hamingja. Ef að þið eigið ekki eitthvað af þessu þá örvæntið eigi því að það verður örugglega einhver annar í hópnum ykkar sem að er vel græjaður/græjuð. Við erum með 20% afslátt af öllu éti og drekki á bar þessum og munum við væntanlega nýta okkur það líkt og kreppuhrjáðri þjóð sæmir. Mig langar bara að biðja ykkur afskaplega fallega að mæta tímanlega svo að við getum farið tímanlega af stað í leikinn (:

Þá langar mig einnig að minna ykkur á sem að eigið eftir að greiða félagsgjöldin í Þjóðbrók að þá ætla Ragna og Björk að vera aftur á morgun í Odda á annari hæð frá klukkan 13:15. Þær munu taka á móti skráningum í u.þ.b. klukkutíma og er ársgjaldið 2.500 krónur. Ef að þið eigið ekki heimangengt á morgun getið þið lagt  inn á reikning félagsins,  reikningsnúmerið er: 0137-26-017956 og kennitalan er: 451089-1619. Viljið þið vera svo væn að setja  H.Í. ímeilið ykkar í skýringu. Við viljum endilega koma skírteinum í prenntun sem fyrst.

Sjáumst í kvöld :OÞ

4 Responses to “Ratleikur í kvöld og félagsgjöld í Þjóðbrók”

  1. Þar sem það á eftir að prenta félagsskírteinin, má ekki hafa þar smátt letur þar sem kemur fram að staðalbúnaður í flesta viðburði Þjóðbrókar sé VASALJÓS :O).

  2. er búin að millifæra á ykkur og mæti í kvöld!

  3. í ljósi þess að ég er vatnsfælin, þá held ég að ég beili á ratleiknum, en mæti samt örugglega á barinn :P

  4. Er hægt að fá senda kvittun fyrir nem.félagsgjöldunum? KB banki greiðir nefnilega til baka hluta þeirra ef maður mætir með kvittun til þeirra í september.

Discussion Area - Leave a Comment