Ratleikur á fimmtudagskvöldið (10.sept.)
Yndislegu þjóðfræðibörn
Á fimmtudagskvöldið næstkomandi ætlum við að finna barnið í okkur og fara í ratleik um miðbæ Reykjavíkur og ætlum við að vera mætt stundvíslega klukkan átta. Þetta verður léttur og skemmtilegur leikur (fáið Kristínu til að koma með nokkrar kenningar um leiki fyrir ykkur svona ykkur til fróðleiks og yndisauka) sem mun ekki taka mjög langan tíma. Hægt er að líta á ratleikinn sem nokkurs konar manndómsvígslu fyrir nýnemana (talið við Terry til að koma með kenningar um þær, enn og aftur til gagns og gamans). Þegar ratleiknum er svo lokið og allir búnir að innvígjast í heim hinna fullorðnu hittumst við svo á bar/kaffihúsi og dreypum á guðaveigum af hvers konar tagi sem að hver og einn kýs.
Allt saman verður þetta svo auglýst betur á fimmtudaginn!
Ást og aðdáun, Þjóðbrækurnar.
vííí leikur
ég ætla að mæta núna finnst ég missti af nýnemakvöldinu!
Ég er komin með útleyfi á fimmtudagskvöldið þannig að ég mæti. Ég missti líka af nýnemakvöldinu þannig að ég verð að mæta
Mæti eldhress að vanda!
er ávalt viðbúin líkt og almennilegur skáti! þannig að ég mæti (:
Ég mæti, missti líka af nýnemakvöldinu!
Ég mæti
Hlakka til að mæta og hitta ykkur…. ;o)
kv. Halldóra
Ég býst við að mæta og treysti á BA fólk að veita mér upplýsingar um allar þessar kenningar
Ég kem auðvita enda ratvís mjög…
…þetta á auðvitað að vera auðvitað
Missi sennilega af ratleiknum, er að vinna til 9. En mæti og dreypi á guðaveigum…
Ég kem
Ég mæti (raunveruleg þýðing: ég elska bjór)
Mæti !
ég verð að sjálfsögðu einnig með í þessum stórfenglega viðburði
Tinna , hin eina sanna, mætir ekkert smá hress og kát
Reikna með að mæta…:-)