Nýnemakvöldið

Sæl bómin mín (:

Nýnemakvöldið heppnaðist bara alveg sérdeilis vel. Við mættum 24 gullfallegir þjóðfræðinemar í bakherbergið á Celtic Cross og skiptumst á að sitja undir hvert öðru…og sötra bjór þess á milli. Það var heldur þröngt á okkur en þar sem öll dýrin í skóginum eru auðvitað miklir vinir gekk þetta allt saman upp en þess má geta að herbergið rúmar ca 15 manns! Þegar við höfðum lokið við að kveðast á og tekið nokkrar lotur í munnkróki hófu stjórnarmeðlimir Þjóðbrókar upp raust sína. Farið var yfir það sem er fyrirhugað að dunda sér við á komandi vetri. Þar ber að nefna vísindaferðir/nördaferðir af ýmsu tagi, leikhús-og/eða bíóferðir, bjórkvöld, litlu jól, þorrablót og lokahóf og fleira. Þá var kosinn nýnemafulltrúi og 4 dásamleg ung fljóð buðu sig fram í þorrablótsnefnd en það eru þær Aldís, Eyrún og Hrafnkatla sem allar eru á fysta ári og síðast en ekki síst reynsluboltinn og ofurskátinn Nanna sem er á þriðja ári. Ég held að það sé óhætt að segja að það hafi verið söguleg stund þegar að það var kosinn nýnemafulltrúi! Já, ég sagði það…kosinn! Þá á ég við að það voru alvöru kosningar með framboðsræðum og öllu tilheyrandi eins og við höfum heyrt að “stóru” nemendafélögin hafa það..! Dramatíkin endaði ekki þarna því að það varð jafntefli á milli tveggja frambjóðenda og því var kosið aftur. Mjótt var á mununum en Björk hafði þetta á lokasprettinum og er því nýr nýnemafulltrúi Þjóðbrókar þetta skólaárið. Einnig var verðandi Þjóðbrókarmeðlimum tjáð það að við (Margrét, Vala, Ragna og Björk) verðum með merkt borð á annari hæð í Odda á milli hálf 10 og hálf 4 á miðvikudaginn næstkomandi sem og í hádeginu á fimmtudaginn. Þar ætlum við að taka á móti greiðslu í nemendafélagið sem eru litlar 2.500.- fyrir skólaárið. Gerir undirrituð svo ráð fyrir því að allir hafi svifið sælir og glaðir út í nóttina og þakkað almættinu heitt og innilega fyrir það að hafa tekið þá ákvörðun að ætla að gerast Þjóðbrækur.

Góðar stundir.

p.s. Mig langar að biðja alla að taka frá föstudagskvöldið 13.nóvember og fram á laugardagsmorguninn en þá ætlum við að fjölmenna út í Gróttu:O) Nánar auglýst síðar.

One Response to “Nýnemakvöldið”

  1. Komst því miður ekki í gær vegna óviðráðanlegra aðstæðna.. hehe.. Hefði mjög svo viljað koma! Mæti næst!! :)

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra