Aðalfundur og lokahóf Þjóðbrókar
Posted on apríl 24th, 2009 ritaði Margrét
Kæru Þjóðbrækur
Föstudaginn 15.maí verður aðalfundur Þjóðbrókar. Kosið verður í nýja stjórn, pizzum og bjór verður hesthúsað og mikið skrafað. Eftir fundinn hefst svo lokahófið og þá verður dansað, sungið, hlegið… og rifjuð upp öll skemmtilegu gullkornin frá vetrinum og kannski líka vandræðalegu augnablikin..? En aðalatriðið er að við ætlum að skemmta okkur saman og “binda slaufuna” á veturinn
Gillið verður haldið heima hjá Steinunni sem býr á Óðinsgötunni. Tímasetning og heimilisfang auglýst síðar. Við vonumst eftir að sjá ykkur öll!
Sumarkveðja, Margrét, Nanna, Steinunn og Vala.
ég hlakka til
úllala! Ég hlakka líka til
Ég mæti – hlakka bara til!
Ég mæti galvösk að vanda
Ég mæti
er bara að spá í að mæta…!
nýtt met slegið hjá mér þetta kvöld…plús trúðabúningur…svo takið myndir, þær endast lengur;)