Vísindaferð í Sjóminjasafnið

Dásamleg vísindaferð framundan sem uppfyllir allar þarfir þjóðfræði nördsins: Vísó í Sjóminjasafnið! Við ætlum að vera mætt á Sjóminjasafnið klukkan 17:00 á föstudaginn (20. mars) að Grandagarði 8. Félagar okkar í bókmenntafræðinni ætla að nördast með okkur og verða dulitlar guðaveigar í boði. Við fáum leiðsögn um safnið og svo fer Nanna (hún vann þar í sumar) með okkur út í varðskipið Óðinn og segir okkur allt sem hún veit um hann. Okkur langar að fara svo í bæinn (ca kl 19:00 ??) og fá okkur í gogginn saman. Ef þið hafið hugmyndir um góða staði meigið þið gjarnarn setja það í kommenta kerfið. Viljið þið líka vera svo krúttleg að setja líka nafnið ykkar þar svo við vitum hversu mörg við verðum.

Góðar stundir.

16 Responses to “Vísindaferð í Sjóminjasafnið”

  1. mæti, mæti, mæti! og Vala líka :)

  2. ég get nú ekki látið það framhjá mér fara að kíkja á óðinn… hef nú farið einn túr… get sagt ykku sögur … sjóarasögur haha ;)

  3. Maður mætir auðvitað í þetta! :)

  4. Ég mæti!

  5. Ég ætla að koma!

  6. Ég mæti.

  7. Ég mæti

  8. wow….hvaða strákanöfn eru þetta? ;) hehe….en já vitiði…það eru bara góðar líkur á því að ég komi…ótrúlegt en satt…þó svo að ég hafi unnið þarna í fyrra þá náttúrulega getur maður ekki látið það framhjá sér fara…allt svo það tækifæri að gefa fiskunum í bryggjusal né kíkja út í Óðinn gamla….so count me in babys!

  9. Ég mæti

  10. ég tek undir með Hildu hvaða huldumenn eru þetta :D
    Ég er að fara í leikhúsið 13.kvöld kl. 20:00 svo ég á aðeins eftir að sjá hvot ég geti látið allt fitta!

  11. hei! við Steinunn erum líka að fara í leikhús og við mætum samt! þetta er bara til ca 7…

  12. Ég mæti

  13. Ég held að það sé ekki þorandi að hafna Óðni. Og hreint og beint dónalegt að segja nei við mjöð.

  14. Hæ, hæ ég ætla að mæta :-) er stemming í liðinu að fara svo í partý til mín á eftir? í aðal Þjóðbrókar partýpleisið !!! ;-)

  15. Ég mæti í vísindaferðina en ekki í matinn.

    Kveðja,

    Ólöf

  16. Ég mæti

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra