Þorrablót/Góugleði!!!
Ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum…. að þá brestur á með þorrablóti á næstu helgi eða laugardaginn 7.mars. Þar sem þetta er svolítið seint að þá má líka alveg kalla þetta risa teiti Góugleði
Í ár er það haldið á Hótel Sögu en nokkur svona minni máttar (lítil) nemendafélög innan skólans tóku sig saman og ákváðu að halda árshátíð og þorrablót saman á Sögu. Engu að síður verðum við í sér sal þar sem við ætlum að skemmta okkur saman og að sjálfsögðu verða fastir liðir eins og venjulega á sínum stað. Þá er ég að tala um gleðina, happdrættið, minni karla og kvenna, söng, dans og ýmislegt fleira sem mun koma skemmtilega á óvart get ég lofað ykkur! Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst kl 19:45 og munum við þá skófla í okkur þjóðlegum réttum ásamt einhverju síður þjóðlegu af hlaðborðinu. Tilboð verða á barnum til að skola niður hákarlinum og tilheyrandi. Svo um miðnætti hefst sameiginlegt dansiball allra félagana í stórum sal og er auðvitað tilvalið að dilla sér þar af öllum mætti og hafa hátt með hljómsveitinni Hitakút sem mun leika fyrir dansi. Okkur hlakkar ROSALEGA mikið til að skemmta okkur saman og hafa það gaman
Seinna í vikunni smellum við inn upplýsingum um fyrirpartý og þess háttar.
Ykkar Þjóðbrækur með gleði í hjarta.
Discussion Area - Leave a Comment