Gagndansaball í Iðnó

Jæja, þá er síðan komin í lag :)

Við vorum beðin um að koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri og hljómar þetta nú MJÖG spennandi!

Gagndansaball í Iðnó

 

Íslenska dansfræðafélagið í samstarfi við Þjóðdansafélag Reykjavíkur efnir til dansleiks í Iðnó 17. mars 2009.

Dansleikurinn hefst kl. 20.30 og mun stands til 23.30.

 Dansaðir verða gagndansar (kontradansar) ekki ósvipaðir þeim sem sjá má í kvikmyndum sem gerðar eru eftir sögum Jane Austin, en þó samkvæmt íslenskum danshefðum.

 Vonast er til að ballgestir klæði sig upp í íslenskan búning eða annan viðhafnarklæðnað. Í hléi verður boðið uppá rauðgraut eins og gert var á böllum í Iðnó forðum daga.

Danskennsla til undirbúnings fyrir ballið verður þriðjudagana 24. febrúar, 3. mars og 10. mars og hefst kl. 20.00 öll kvöldin.  Kennt verður í húsnæði Þjóðdansafélag Reykjavíkur,  Álfabakka 14a.

 Miði á dansleikinn ásamt ofangreindum æfingum kostar 3.000 krónur fyrir félagsmenn en 3.500 krónur fyrir aðra og greiðist inn á reikning Íslenska dansfræðafélagsins

525-26-5805, kt: 580500-4040

Munið að setja nafn greiðanda í skýringartexta.

Nánari upplýsingar má finna á bloggsíðu félagsins: blog.central.is/dansfraedi

 

Skráning með tölvupósti á sesseljagm@gmail.com

 

6 Responses to “Gagndansaball í Iðnó”

  1. Ég fór í fyrra, og það var mjög gaman.

    Íklædd í kjóll frá um aldamótin 1900, með uppsett hárið og dansaði og dansaði, og borðaði síðan rauðgraut í hléinu.

    Mjög góð skemmtun og tilvalið að upplifa dansleik fyrri tíma.

  2. Svo ég tali nú um allt annað;) Í sambandi við víkingahátíðina sem við töluðum um á fundinum um daginn. Þá fann ég Wolin á korti á netinu og fattaði ekki fyrr en ég fór að skoða það betur að ég keyrði sjálf þarna í gegn fyrir 2 árum;) mundi bara ekkert eftir því. En hérna er þetta á kortinu:

    http://www.maplandia.com/poland/zachodnio-pomorskie/kamien-pomorski/wolin/

    En ég fann heldur ekki nánari upplýsingar um þessa hátíð, nema að það fór einn félagi frá Einherjum á hátíðina í fyrra. Það væri kannski hægt að hafa upp á honum og ath hvort hann hafi einhverjar meiri upplýsingar um hátíðina.

  3. Gleymdi að segja að ég fann það út að hátíðin í fyrra var 1-3. ágúst. Þannig að það er líklegt að hún sé haldin fyrstu helgina í ágúst á hverju ári.

  4. Þó að víkingahátíðir eru mjög spennandi, þá vendi ég aftur kvæði í kross og spyr hvort einhver hafi skroppið á dansæfingu í gærkvöldi? Dansað til dæmis “vefarann” og sungið um leið? en í þeim dansi “leika” dansarar hvernig vefnaður verður til í kljásteinsvefstól, þræðir þræddir í grindina, skyttunni skutlað í gegn og svo framvegis þannig að úr verða dýrindis dúkar.

    En svona til fróðleiks, þá er formaður Dansfræðifélagsins, sagnfræðingurinn Ingibjörg Björnsdóttir MA, sem kenndi í fyrra:
    ÞJÓ309G Dans og dansmenning: Frá hoppi til hip-hops.

  5. Víkingahátíðir og dansleikir!! Rooosa spennandi :) ég get því miður ekki verið með á dansæfingum né mætt á dansiballið sjálft :(
    en ég var einmitt búin að komast að því hvar Wolin er staðsett í landinu. það væri frábært að fá meiri upplýsingar hjá þessum sem er búin að fara og einnig veit ég að Rimmugýgur hefur farið þannig að við þurfum bara að bera okkur eftir björginni held ég ef við ætlum að gera alvöru úr þessu! go girls…!!

  6. [...] [...]

Discussion Area - Leave a Comment