Umræður um hugmyndir að BA verkefnum!
Posted on febrúar 10th, 2009 ritaði Margrét
Kæru samnemar.
Á miðvikudag í næstu viku (18.feb.) ætlum við að hittast klukkan 16:45 í fundarherberginu inn af skrifstofunni hans Terry (á sama stað og við hittumst fyrir jól). Hugmyndin er að hafa það notalegt saman og ræða um hugsanleg BA verkefni. Það eru allir þjóðfræðinemar velkomnir og þyggjum við alveg að fá MA nema líka ef þeir vildu vera svo huggulegir að deila reynslu sinni með okkur sem eigum BA ritgerðirnar okkar eftir. Kristín verður með okkur og sennilega annað hvort Terry eða Valdimar. Við vonumst eftir góðri þátttöku og að við getum “breinstormað” saman
Það verður kaffi og með´í í “bjóðinu”.
Ást og aðdáun frá Þjóðbrókum
verulega góð hugmynd! gott að finna svona mikla ást, umhyggju og uppörvandi aðdáun líka
Vá.. það er eins og ég hafi fengið hugboð. Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér (eins og svo oft áður) og ég var inn á heimasíðu Félags þjóðfræðinga á Íslandi einmitt að tékka á hvað hefði verið búið að skrifa. Síðan kíki ég hingað inn og viti menn, þá á bara að halda fund og alles;) Ég ætla sko pottþétt að mæta;)
Frábært! við Þjóðbrækur tökum það einmitt að okkur að lesa hugsanir og sinna öllum þörfum okkar fólks…..
ég hlakka til að mæta