Kósýkvöld

Fimmtudaginn 12. febrúar stendur Þjóðbrók fyrir samskota kvöldmat heima hjá Nönnu, Eggertsgötu 26, íbúð 102. Herlegheitin byrja klukkan 19:00 og er ætlunin að eta, drekka (gos) og vera glöð saman. Það væri mjög gott ef þið gætuð skráð ykkur í kommentakerfinu og jafnvel tekið fram hvað þið ætlið/gætuð hugsað ykkur að koma með (bara svona svo það komi ekki allir með kex og osta og svo Nanna geti fengið lánaða stóla og diska :P )

Spjall og matur, uppáhald allra þjóðfræðinema.

Kveðja Rauðhetta

16 Responses to “Kósýkvöld”

  1. Ég mæti (enda er þetta heima hjá mér).

  2. ég mæti… en ég er ekki alveg viss hvað ég ætla að mæta með.. enda líklega á því að koma með köku þar sem ég kem beint af æfingu, en er þetta “saumaklúbbur” eða einungis kósykvöld?

  3. Ég gleymdi að segja að ég kem líklega með (eða baka heima hjá mér) eplaköku. Tilkynning um hvað fólk er að spá í að koma með er alls ekki bindandi.

    Við viljum ekki hræða strákana frá því að mæta svo við köllum þetta bara kósýkvöld. Það má samt alveg koma með handavinnuna.

  4. mæti með túnasalat og ritz og kannski nokkra stóla… má ég koma með útskurðinn minn?? lol

  5. merkilegt…ég hef aldrei komist með í vísó…né party…né kósykvöld…Grótta? nei…ekki það heldur…ég held í alvörunni að ég sé efni í þjóðfræðirannsókn…það eru álög á mér…get svo svarið það…en já ég sem sagt kemst EKKI…..bömmer….en svona er þetta. Er ekki örugglega ,,þorrablótið” föstudaginn 6 mars??? ég er sko löngu búin að taka þann dag frá svo ekkert má klikka…en…góða skemmtun;)
    Hilda

  6. nei Hilda mín, Þorra-/Góublótið er lau. 7.mars…. stranglega bannað að vera upptekin þá!!

  7. ég kem og það verður mexíkóa-osta salat – eitthvað til að hlakka til

  8. ég kem, og örugglega bara með heitan rétt með mér.

  9. Mæti… hvað segið þið um bannaða súkkulaði köku með kanil?

  10. ég hef ákveðið að heiðra ykkur með nærveru minni (hvort sem ykkur líkar betur eða verr) og var að pæla að gera svona kaldan pastarétt með einhverju….tilraunastarfsemi…

  11. Ég er að spá í að kíkja á ykkur.
    Veit ekki alveg hvað ég get komið með….kannski bara bland í poka? :0)

  12. ok sko….lítur allt út fyrir að ég komist after all sko…en svo var ég að lesa að Karen ætlar að koma með eitthvað tilraunadæmi og þá er ég eiginlega hætt við hehe….djók!!! en eins og ég segi þá lítur út fyrir að álögunum hafi verið létt af mér;) svo ég finn eitthvað gott að koma með;)

  13. Ég kem – með nýbakaðar enskar skonsur og íslenskt smjör :o )

  14. engar áhyggjur Hilda, ég kemst svo ekki eftir allt saman… svo þú munt líklega lifa af :) Færðiru kannski álögin yfir á mig???

  15. aha….ætli það ekki bara hehe;)

  16. vildi bara þakka fyrir ánægulega kvöldstund og skemmtilega umræður og góðar veitingar.
    takk fyrir mig Þórunn

Discussion Area - Leave a Comment