Skemmtidagskrá í febrúar 2009.

Kæru blóm.
Eins og þið hafið vafalaust veitt eftirtekt þá er stefnan tekin á Hernaðarandstæðinga á föstudaginn þann 6. feb. (sjá færslu hér að neðan). Í næstu viku mun Nanna svo taka á móti okkur í “saumó” og lesa fyrir okkur ævintýrið um Rauðhettu sem er einmitt hennar sérgrein. Í vikunni þar á eftir fáum við hádegisleiðsögn í Þjóðminjasafninu og munum við láta frá okkur heyra aftur með dagsetningu. Einnig hefur Fróði (félag sagnfræðinema) verið svo hugulsamur að bjóða okkur með í vísindaferð í Nova á föstudeginum þann 20. feb. Að síðustu í þessum mánuði mun Steinunn bjóða okkur í grímubúningapartý til sín, föstudaginn 27. febrúar, í tilefni öskudags þar sem við ætlum að klæða okkur upp og finna barnið í sjálfum okkur :)
Ykkar einlægar, Þjóðbrækur.

5 Responses to “Skemmtidagskrá í febrúar 2009.”

  1. Ég er ánægð með ykkur, fullt að gerast.

  2. jú jú, allt að verða vitlaust bara! nú er bara að fá fróðleiksfúsa og skemmtanna glaða verðandi þjóðfræðinga með í för…

  3. ég ætla að láta vita að ég ætla að koma með í vísindaferðina:D

  4. Ég væri jafnvel til í að skella mér með í vísó, er ég of sein? Má taka vin með?

  5. Hæ, ég væri til í að koma með. Vona að ég sé ekki of sein. Klukkan hvað byrjar þetta?

Discussion Area - Leave a Comment