“Blogg” um vísindaferðina síðasta föstudag.

Góða kveldið ástkæru samnemar.
Við fengum þá einlægu bón að við myndum “blogga” um það sem við værum að brasa saman. Það er að segja að gera stuttlega grein fyrir því sem á daga okkar drífur í vísindaferðum sem og öðrum skemmtiferðum. Þannig geta þeir sem ekki áttu heimangengt í ævintýrin með okkur, fylgst með og glaðst í hjarta yfir því hvað við hin skemmtumm okkur nú vel.
Ragna var svo dásamleg (eins og alltaf) að skrifa fyrir okkur ferðasögu um síðustu vísindaferð og er afraksturinn hér fyrir neðan :)
(Það mun líka detta hérna inn von bráðar frásögn um ferð okkar í Gróttu)

Vísindaferð Þjóðbrókar
Föstudaginn 23. Janúar
Heimilisiðnaðarfélagið og Árbæjarsafn

Á föstudeginum 23. Janúar voru þjóðfræðinemar svo lánsamir að fá að koma í heimsókn í heimilisiðnaðarfélagið, þar sem hún Steinunn, þjóðfræðinemi, tók á móti okkur opnum örmum. Óhætt er að segja að við komum margs fróðari út aftur. Fróðleikurinn sem hún Steinunn lumar á er mikill og skemmtilegur. Hún sýndi okkur alls konar þjóðbúninga frá löngu tímabili og útskýrði þróun og tísku hvers tímabils. Það er ekki neinum blöðum um það að fletta að Íslendingar gátu verið afskaplega flottir í tauinu og fylgdu tískustraumum umheimsins eins og unnt var. Búningarnir margir hverjir sýndu það að íslenskar frúr, hlaðnar gulli og glingri, ofið og saumað í litrík og efnismikil klæði, voru engir eftirbátar annarra kvenna á suðlægari slóðum. Maður ætlaði varla að trúa sínum eigin augum.
Í Heimilisiðnaðarfélaginu er atorkusamt fólk sem býr til búninga fyrir sig og sína, og fjölbreytileikinn er ótrúlegur. Steinunn sjálf á mikið af flottum búningum sem hún hefur gert, og við hinar urðum grænar af öfund og aðdáun. Það er bara spurning, ef við nennum ekki að dressa okkur upp sjálf, hvort við getum ekki fundið okkur svona fjölskyldur þar sem þetta dugmikla fólk lætur að sér kveða. Annars er bara að skella sér á eitt af fjölmörgum af námskeiðum félagsins og tileinka sér þessi fornu handtök.

Að lokinni heimsókninni í heimilisiðnaðarfélagið, var haldið af stað í roki og rigningu í átt að Árbæjarsafni. Þar tók hann Silli á móti okkur og leiddi okkur dömurnar, á háu hælunum í asa hálku, í gegnum myrkrið og til kirkju. Úfnar og kaldar var okkur skipað í kórinn, og við kertaljós og gnauð í vindi fengum við innsýn í kirkjusögu landsins. Dýpkaði sú heimsókn skilning okkar til muna á eðli og þróun hins kristna samfélags, auk stjórnmála og þjóðhátta.
En þjóðfræðinemar voru ekki lengi í paradís… eða næst því hér á jörðu… heldur héldum við af stað að Árbænum sjálfum. Ef skilningur okkar á hinu veraldlega hafði aukist áður, þá fór skilningur okkar á hinu yfirskilvitlega að eflast við þá heimsókn. Í það minnsta hjálpaði myrkrið og þröngir gangar okkur að skilja hvernig hinar ýmsu þjóðsögur höfðu tækifæri á að mótast í hugum landsmanna.
Ferðin vakti samt upp margar spurningar, spurningar sem fengust bara óljós svör við… við vitum þó af ákveðnum þjóðfræðinemum sem hafa svörin, en í Árbænum er víst kjöraðstaða til að átta sig á því hvernig börnin urðu til hér áður fyrr. Margrét Sigvaldadóttir lumar á einhverjum útskýringum, fyrir áhugasama.
Eftir að þekkingarþorstanum hafði verið svalað, þá var komið að því að svala annars konar þorsta. Lokaáfangi ferðarinnar var viðkoma á Kornhúsloftinu, þar sem við drukkum, átum og spjölluðum fram á kvöld. Nýir og gamlir, eldri og yngri þjóðfræðinemar fengu tækifæri til að kynnast betur og tjá sig og sýna sýn á heiminn. Glatt var á hjalla og þáttakendur í þessari vísindalegu ferð sælir og ánægðir með útkomuna.
Fyrir suma nægði þetta viðburðarríka kvöld ekki til að fullnægja félags- og skemmtanaþörfinni. Þegar við höfðum drukkið og spjallað nóg á Árbæjarsafni, þá voru sumir sem héldu heim til hennar Hjördísar þar sem áfram var haldið að eta og drekka. Aðrir voru skynsamir og létu gott heita… en ekki skal fara fleiri orðum um þessa ferð Þjóðbrókar, sem hófst innan öruggs sviðs þjóðlegra fræða, en endaði úti í hinu stóra, villta samfélagi mannanna.

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra