Nýskráningar og týnd félagsskírteini

Fjöldi fólks hefur komið að máli við stjórn Þjóðbrókar upp á síðkastið og lýst yfir gífurlegum áhuga á að ganga í félagið. Auk þess hefur fjöldi fólks komið að máli við okkur vegna þess að þeir fengu ekki félagsskírteinið sitt. Ef þú fellur undir annan hvorn hópinn máttu annaðhvort tjá þig um það í kommentakerfinu eða senda póst á thjodbrok@hi.is fyrir mánudaginn 2. janúar svo hægt sé að láta búa til nýtt skírteini handa þér.

Ef þið eruð á báðum áttum um hvort það sé nokkuð gaman að vera í Þjóðbrók þá er viðburðaráætlun fyrir næstu mánuði væntaleg sem ætti að geta sýnt fram á annað.

Discussion Area - Leave a Comment