Vísindaferð fös. 23. jan. Nánari upplýsingar.

Það stefnir allt í góða stemmu á morgun :) Við ætlum að vera mætt í Heimilisiðnaðarfélagið klukkan 16:30 en það er staðsett í Nethyl 2e í Árbænum (í grænu húsi hjá fiskbúðinni). Leið 19 gengur þarna framhjá (líka hægt að taka 18 og labba smá eða t.d. leið 6 og 15 sem stoppa í Ártúni). Svo töltum við yfir götuna á Árbæjarsafnið þar sem myrkrarleiðsögn a la Silli byrjar klukkan 18:00. Hún tekur um klukkustund eða svo og þá vætum við kverkarnar í Kornhúsinu en Þjóðbrók býður þar upp á dulítið brugg í dósum. Svo þegar við verðum langt komin með byrgðarnar höldum við í teiti til Hjördísar sem var svo mikill kjullubangsi að bjóða okkur til sín. Þar ætlum við að pannta okkur flatbökur í massavís og vökva okkur jafnvel svolítið meira. Hjördís býr í Hlíðunum og fáum við betri upplýsingar á morgun um það hvar hún býr og hvernig við komumst þangað í stórri gulri sjálfrennireið. Eftir átið þar ætlum við að skunda á The Celtic Cross þar sem við Þjóðbrækur fáum tilboð á barnum til miðnættis. Svo verður auðvitað dansað fram á nótt..
Þeir sem telja sig vera orðna mjög þyrsta annað kvöld ættu kannski að koma með drykki til að sötra á leiðinni yfir á safn og svo til að hafa við höndina í teitinu góða. Þeir sem ekki eru meðlimir Þjóðbrókar borga 500 en við hin njótum lystisemdanna frítt.
Þeir sem hafa áhuga á að ganga í Þjóðbrók geta lagt 2.500.- inn á reikning félagsins og nýnemar sem voru að byrja núna í janúar borga 1.250.- Reikningsnúmerið er: 0137-26-017956 og kennitalan er: 451089-1619.
Ef upp vakna spurningar sendið þið bara línu í kommentakerfið eða hafið samband við okkur Þjóðbrækurnar. Endilega kvittið þið líka í kommentakerfið ef þið komið með svo við vitum hversu mörg við verðum og að engin verði eftir….
Hlökkum til að sjá ykkur og leifum nördismanum að blómstra annað kvöld!

6 Responses to “Vísindaferð fös. 23. jan. Nánari upplýsingar.”

  1. Er að hugsa um að mæta í Árbæinn á morgun,

    Dagbjört

  2. Er að hugsa um að mæta í Árbæinn á morgun

  3. Ég mæti á morgun á báða staðina.

  4. Mig ætla að koma! :)

  5. hehehe ætlaði að segja: Mig langar að koma! :)

  6. Ég mæti mjög líklega í kvöld

    kveðja Ólöf

Discussion Area - Leave a Comment