Vísindaferð í Heimilisiðnaðarfélagið og á Árbæjarsafn
Við ætlum að skunda á vit ævintýranna og halda í vísindaferð á föstudaginn (23.jan.). Að þessu sinni er ferðinni heitið í Heimilisiðnaðarfélagið og á Árbæjarsafn. Tekið verður á móti okkur í Heimilisiðnaðarfélaginu kl 16:30 og þaðan örkum við á Árbæjarsafnið og hefst leiðsögnin þar kl 18:00. Sú verður með óvenjulegu sniði því við fáum “myrkraleiðsögn” …úúúú…….. Að henni lokinni gæðum við okkur á ódýrum innfluttum bjór á Kornhúsloftinu. Hugmyndin er síðan að keyra/taka strætó niður í bæ og fara út að borða og sökum “kryppu” munum við reyna að finna stað sem selur eitthvað ætilegt á verði fyrir stúdenta. Núna hafa allir Þjóðbrókarmeðlimir fengið skírteinin sín og við vorum að spá í að nýta okkur tilboðin sem bjóðast á barnum á The Cheltic Cross eftir máltíðina. Mun þar ríkja gleði við völd er við mætum brosmild og hýr að vanda.
Ég set svo inn nánari upplýsingar (eins og heimilisföng, strætóleiðir sem henta, verð og fl.) á fimmtudaginn. Viljið þið kvitta í kommentakerfið ef þið komið með svo við getum gert okkur grein fyrir fjölda.
Vísó knús og kossaflens frá Þjóðbrókum.
ég ætla klárlega!!
Ég kem 100%
Ég mæti með læti!
ég mæti
ooog ég mæti líka
Ég mæt hress og kát og mega spent
Ég kem
Ég kem kannski, vonandi, ef ég kemst í bæinn=)
Hey, ég hef ekki fengið mitt skírteini. Þið ætluðuð að senda mér það í haust en það bólar ekkert á því enþá.
Veit ekki enþá hvort ég komist á fös.
Hef áhuga á að mæta.
Nanna bara breaking through;) en ég kem ekki…vel þorrablót fyrir norðan fram yfir þetta…já og mömmu og pabba og alla;) en annars hefði ég AUÐVITAÐ komið;)
skemmtið ykkur vel!
Valgerður við sendum þér jólakort ásamt skírteininu, en það virðist ekki hafa skilað sér…? finnum út úr því
sama vandamál hér.. ég fékk allavega ekki skírteni