Dagskrá á þri. þann 13.jan.
Gleðilegt árið elskurnar
Hér er tilkynning frá Stúdentaráði:
Kæru stúdentar
Á Háskólatorgi kl. 14:00 næsta þriðudag, 13. janúar, verður stuð á Háskólatorgi í byrjun vorannar.
1. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur stutt ávarp.
2. Þjónustuborðið á Háskólatorgi kynnir starfsemi sína.
3. Náms- og starfsráðgjöf kynnir þá þjónustu sem stendur stúdentum til boða. Nánari upplýsingar um NSHÍ.
4. Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs kynnir starfsemi ráðsins. Nánari upplýsingar: http://www.student.is/studentarad/forsida. Stúdentaráð býður svo nýnemum í gönguferð um Háskólasvæðið til þess að rata þar um.
Kl. 15:00 munu meðlimir Háskóladansins taka syrpu á Háskólatorgi. Nánari upplýsingar: www.haskoladansinn.is.
Kl. 16:00 spilar hljómsveitin Retro Stefson skemmtir stúdentum. Tónleikarnir eru í boði Félagsstofnunar stúdenta (FS) sem rekur m.a. Stúdentagarða, Bóksölu stúdenta, Hámu og Leikskóla stúdenta. Nánari upplýsingar: www.fs.is.
Það getur skipt sköpum fyrir nýnema að kynna sér skólaumhverfið og þá þjónustu sem er í boði. Vel upplýstir stúdentar eiga það síður á hættu að lenda í vandræðum þegar eitthvað kemur upp á í náminu. Þess vegna eru allir nýnemar hvattir til þess að mæta sem og aðrir nemendur og starfslið HÍ.
Með bestu kveðju,
Stúdentaráð Háskóla Íslands
Discussion Area - Leave a Comment