Gróttuferð =D

Jæja, þá er loksins að koma að því. Við ætlum að fara út í Gróttu næstkomandi föstudagskvöld (21.nóv.), skella okkur í náttfötin og eiga frábæra stund saman. Sagðar verða draugasögur, gamansögur, flökkusögur, lygasögur og alls konar sögur! Við ætlum að fá okkur göngutúr um eyjuna með vitaverðinum okkar um nóttina og um morguninn förum við upp í vitann og kíkjum á útsýnið. Það var ROSALEGA gaman seinast og það verður örugglega enn skemmtilegra núna. Krístín er allavega orðin ferlega spennt!
Við hittumst klukkan 22:00 út á “tánni” þar sem hægt er að leggja sem næst gönguleiðinni út í eyjuna(leið 14 keyrir þessa leið). Það verður orðið fært aftur til baka klukkan 8:00 morguninn eftir en sennilega verðum við nú ekki svo snemma á ferðinni… verðum líklega að koma heim um hádegi? Allir mæta með eitthvað að drekka fyrir sig og svo leggjum við í púkk eitthvað til að narta í. Seinast var komið með heimabökuð möffins, smurðar flatkökur, víber og osta, brauð og pestó, nammi, snakk og fl. bara svona til að gefa einhverjar hugmyndir. Einnig þarf að kippa með sér svefnpoka en það eru dýnur á staðnum og munið að vera vel klædd elskurnar. Óþjóðbrókaðir þjóðfræðinemar borga 500.- (ef þið eigið dollara, evrur eða eitthvað verðmætara er það vel þegið í kryppunni….). Endilega skáið ykkur í kommentakerfið svo við getum gert okkur grein fyrir því hversu margir mæta.
Hlökkum til að eiga frábæra stund með ykkur! Kremjuknús og kossar, Þjóðbrækur.

17 Responses to “Gróttuferð =D”

  1. jei! ég mæti :)

  2. ég mæti líka :)

  3. Mæti einnig.
    Dagbjört

  4. Endilega bætið mér á listann, ég hlakka ekkert smá til.

  5. Ég mæti og hlakka til!

  6. Hef ákveðið að þar sem ég á ekki heimangengt í skemmtilegheitin á Gróttu að þessu sinni en langar gríðarmikið að vera í náttfötum utan heimilis ætla ég að dvelja þessa sömu nótt í fjárhúsunum hér og eiga frábæra stund saman með mér. Kann engar draugasögur en mun samt ekki missa af hærðslunni enda nóg af músum á staðnum.
    Eigum öll góða skemmtun

  7. Ég mæti með læti!

  8. ég kem

  9. Ég mæti og tek örugglega með mér eitthvað súkkulaði…ummm

  10. Er að undirbúa mig andlega og verð orðin töff á morgun! Hlakka mikið til kæru þjóðbrækur. Sigríður Ása

  11. Ég reikna fastlega með að mæta. Á ég að gera súkklaði kökuna góða í muffins formi (auðvita með kremið ofan á) ??

  12. ég kem !! vel klædd og VEL SKÓUÐ, það borgar sig víst að vera VEL SKÓÐAÐUR í þessari ferð svo við verðum ekki úti vegna fótkulda og breytumst sjálfar í flakkandi draugasögur.

    Kolla mér þykri þetta góð hugmynd hjá þér og við verðum með þér í anda / öndum í fjárhúsinu.

    ég kem með fanta túnfisksalat með gulumbaunum og öðru gúmmulaði!!!

  13. Fanta túnfisksalat er svakalegt túnfisksalat ekki drykkurinn Fanta og túnfisksalat!! hehe
    hei já… er ekki nauðsinlegt að vera með vasaljós??

  14. gleymdi einu… ef þið eygið VASALJÓS, endilega takið það með!

  15. Að sjálfsögðu kem ég eins og hinar stelpurnar. Er að undirbúa mig. Er í klippingu og litun núna.

    Birgitta

  16. Ég var einmitt farin að hafa áhyggjur af því að þetta yrði bara stelpuferð. Það er gott að sjá að svo er ekki.

  17. oh….mig langar með….en kærastinn að vinna til kl 11 og engin pössun….öfund:/ skemmtið ykkur vel

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra