“Litlu jól” og frestun á fyrirhugaðri vísindaferð.

Planið var að fara í vísindaferð á Sjóminjasafnið á föstudaginn en ákveðið hefur verið að fresta því. Þar kemur margt til en við erum velkomin eftir áramót :) (ekki gleyma Gróttuferðinni þann 21. nóv.! auglýst betur síðar)
Hinsvegar ætlum við að hittast eftir viku og spjalla um námið og hafa kósí jóla stemningu. Búið er að senda póst á alla og vonandi komast sem flestir. Þessi póstur var sendur út:
Elskulegu samnemar.
Upp kom sú hugmynd að við myndum hittast öll og eiga kósí stund saman og ræða um námið okkar. Því hefur verið ákveðið að setja á hitting næstkomandi þriðjudag (18.nóv.) klukkan 5 á kaffistofunni á 1. hæð í Odda (inn af kennaraaðstöðunni). Þetta er fyrir ALLA nemendur í þjóðfræði og ætla okkar dásamlegu kennarar að vera með okkur.
Okkur gefst kostur á að spyrja spurninga um námið (og líka þeirra sem við höfum aldrei þorað að spyrja..). Frábært væri ef þið mynduð senda þær á Kristínu kennara (kriste@hi.is) þannig að þau gætu verið vel undirbúin, en það má líka auðvitað skjóta bara á staðnum. Við ætlum að fara yfir mál eins og hvað eiga rannsóknarritgerðirnar okkar að vera margar einingar og hversu margar gerum við? Skildunámsskeið, valnámsskeið og bundið val? Ætlum við að fara saman í námsferð og þá hvert? Og margt fleira! Endilega látið heilann storma og smellið nokkrum hugrenningum á Kristínu.
Þar sem senn líður að jólum langar okkur að gera þetta að nokkurs konar „litlu jólum“ svona eins og voru í barnaskóla :) Við ætlum að hafa kertaljós gera pínu jóla stemmu. Okkur verður boðið upp á drykki en hugmyndin er að hvert og eitt okkar komi með eitthvað að maula, t.d. piparkökur eða eitthvað í þá áttina. Ekkert til að stessa sig yfir (ekki skilda að það sé heimabakað, he he..)bara smá nart þið vitið. Vonandi sjáum við ykkur sem flest og eigum notalega stund saman og afstressum okkur fyrir próf og hátíðahöld.
Ást og aðdáun frá Þjóðbrók og kennurum vorum.

4 Responses to ““Litlu jól” og frestun á fyrirhugaðri vísindaferð.”

  1. En yndisleg hugmynd, kertaljós, smákökur og þjóðfræðiumræður :D Stund til að létta lundina!!! Akkúrat það sem mann vantar í myrkri, kulda og BÍB.

  2. alveg sammála því! verum nú dugleg við að setja spurningar og vangaveltur niður á blað og senda á Kristínu :)

  3. Mikið verð ég með ykkur í anda. Mun sitja ein við kertaljós og piparkökuát með þjóðfræðibækur allt í kringum mig hér á hjara landsins og hugsa stíft til ykkar. Ylja mér svo við tilhugsunina um næstu færslu hér inn sem mun innihalda öll gáfulegu svörin við spuringunum frá ykkur/okkur, eða var það ekki annars þannig þjóðbrækur?
    Bíð líka spennt eftir vita hvenig ég eigi að pakka fyrir námsferðina!!!
    Fjarnámskveðja

  4. Kolla þú þaft nokkuð pottþétt að pakka þrennu… mið- eða víkingaaldarfatnaði, góðu skapi og upptökutæki :)

Discussion Area - Leave a Comment