Vísindaferð í Landsvirkjun-31.okt.
Á föstudaginn næstkomandi ætlum við fara með félögum okkar í Hómó og Torfhildi í vísindaferð. Áfangastaðurinn að þessu sinni er Landsvirkjun. Þar munum við fá feiki mikinn fróðleik ásamt feiki mikið af einhverskonar bruggi úr Á.T.V.R. Þennan dag er Halloween og af því tilefni ætlum við að klæða okkur upp í búninga
Planið er semsagt þetta: Mæting er í Landsvirkjun kl 17:00. Hún er að Háaleitisbraut 68. Við mætum að sjálfsögðu í flottum búningum (er þó ekki skylda). Við fáum kynningu og blöndum svo geði og vætum kverkarnar í góðra vina hópi og skemmtum okkur afskaplega vel.
Svo er það pæling hvort við viljum ekki skreppa í bæinn og fá okkur eitthvað að eta saman. Nú og svo má líka halda áfram að staupa sig dulítið. Ef þið eruð með hugmyndir af stöðum þar sem við gætum fengið okkur í goggin saman eru þær vel þegnar.
Kommentið þið endilega ef ykkur langar í góða vísó (því við eigum 15 pláss) og einnig ef ykkur langar ud at spise (þó þið komist ekki með í Landsvirkjun).
Knús og kossar-Þjóðbrækur.
p.s. það kostar 500.- fyrir þá sem eru ekki skráðir í félagið.
Ég mæti ! Er komin með búing og alles
Hvað segið þið um að borða á Red Chilli eða á Santa Maria eftir vísó??
Ég mæti – í búning að sjálfsögðu og báðir staðir hljóma vel
Ég kem
Ég mæti líka. En ætla engir fleiri en fyrrverandi og núverandi stjórnarmeðlimir að mæta?
Eva Þórdís mætir. Í búning að sjálfsögðu
ég kem með út að borða, en ég er ekki alveg viss með vísó,
Ég mæti.
Já, jú, ætli ég komi ekki bara líka
já…sko…humm…sumir eru bara í tíma á föstudögum til kl 18:10 ….í þjóðfræðinni….ég Ólöf Ragna Gunný og Soffia m.a. hefði verið geim sko….en þarf ekki að passa svona tímasetningar atburða í framtíðinni? bara innskot sko….
Stóru staðirnir eru bara með vísindaferðir klukkan 17:00, því miður því við hefðum viljað fá ykkur með.