Dagskrá Þjóðbrókar haustönn 2008:
Við fórum í frábæra ferð á Hóla og í Laufskálaréttir í september. Við erum búin að skella okkur í partý þar sem gleðin var við völd og svo á bjórkvöld að drekka „kreppubjór“.
Núna er verkefnavika, vona að allir séu rosa duglegir að læra!
En þetta er framundan:
Fös.31 okt.-Vísindaferð í Landsvirkjun með Hómó (félag mannfræðinema) og Torfhildi (félag bókmenntafræðinema). Á þessum degi er Halloween og munum við að sjálfsögðu heiðra þann dag með tilheyrandi grímubúingum (ca 15 pláss laus).
Fim.6 nóv.-Pubquiz með Kumli (félag fornleifafræðinema). Þau buðu okkur að taka þátt svo að nú er að æfa sig í Trivial og bjóða sig fram í lið.
Fös.14 nóv.-Vísindaferð í Sjóminjasafnið með Fróða (félag sagnfræðinema).
Fös.21.nóv.-Gróttuferð! Það var svo SVAKALEGA gaman seinast að við ákváðum að fara aftur. Kristín (kennari)kemur með sem sérlegur guide og draugasögukona. Við gistum eina nótt og höfum það huggulegt. Farið verður út í eynna seint að kveldi og aftur heim um hádegi daginn eftir. Algjört möst að fara í þessa ferð!
Fös.28.nóv.-Teiti! Þetta er síðasti kennsludagur og því er tilvalið að lyfta sér upp og skella sér í partý með samnemendum sínum. Þemað í þessu partýi eru höfuðföt. Til greina koma: hattar, húfur, lambhúshettur, skreyttar spangir og glansandi skallar. Ykkar er valið
Hugmyndin er einnig að hafa litlu jól og svo er auðvitað próflokadjamm með restinni af H.Í.
Einnig er að fæðast nokkuð nett/þétt dagskrá fyrir næstu önn sem verður auglýst síðar.
Góðar stundir.
Ykkar einlægar Þjóðbrækur.
Discussion Area - Leave a Comment